Microsoft hefur gefið út Office 2010 hugbúnaðinn 16. júní 2010 11:17 „Þetta eru spennandi tímar fyrir Microsoft, því það er ekki langt síðan við gáfum út nýtt stýrikerfi, Windows 7, sem hlaut einstaklega góðar viðtökur. Sama hugmyndafræðin var notuð við þróun Office 2010 og því erum við þess fullviss að notendur munu einnig taka Windows 2010 opnum örmum,"segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi.
Microsoft hefur gefið út nýjustu útgáfu Office-skrifstofuhugbúnaðarins, Microsoft Office 2010. Þar með er komin út ný kynslóð algengustu skrifstofuforrita sem notuð eru í heiminum; forrita á borð við ritvinnsluforritið Word, töflureikninn Excel, glæruforritið PowerPoint og samskiptaforritið Outlook, svo nokkur séu nefnd. Í tilkynningu segir að meðal helstu nýjunga í þessari útgáfu Office er áhersla Microsoft á að forritin, og vinna við þau, sé ekki einungis bundin við þá tölvu sem þau eru sett upp á, heldur nýtist Office ekki síður á farsímum og öðrum smátólum og virki jafnframt í netvöfrum. Þannig má með Office Web Apps, sem er alger nýjung í Office 2010, opna, vinna með Word, Excel, Powerpoint og One Note skjöl óháð því hvort Office 2010 sé uppsett á viðkomandi tölvu eða ekki. Aðgangur að Office Web Apps er án endurgjalds - það eina sem þarf er ókeypis skráning hjá þjónustunni Windows Live. Meðal annarra nýjunga í Office 2010 eru innbyggð myndvinnslutól í Word og PowerPoint, sem gera notendum kleift að sníða til myndir sem settar eru inn í skjölin. Með nýjum eiginleika í PowerPoint má nú á einfaldan hátt „senda út" glærukynningu í gegnum netið, þannig að sá sem flytur kynninguna þarf ekki að vera staddur á sama stað og áhorfendurnir. Umtalsverðar endurbætur á Outlook-samskiptaforritinu gera umsýslu með tölvupóst einfaldari auk þess sem hægt er að tengja það við vinsælar samfélagsvefsíður. Microsoft hefur lagt mikla áherslu á að þróa hugbúnaðinn í samvinnu við viðskiptavini og notendur til að hann taki sem mest mið af óskum og þörfum þeirra sem nota hann daglega. Yfir níu milljónir notenda um heim allan tóku þátt í Beta-prófunum Office 2010 og hópvinnulausninni SharePoint 2010, sem eru þrefalt fleiri notendur en tóku þátt í sambærilegum prófunum á Office 2007 á sínum tíma. „Þetta eru spennandi tímar fyrir Microsoft, því það er ekki langt síðan við gáfum út nýtt stýrikerfi, Windows 7, sem hlaut einstaklega góðar viðtökur. Sama hugmyndafræðin var notuð við þróun Office 2010 og því erum við þess fullviss að notendur munu einnig taka Windows 2010 opnum örmum. Það sem mér finnst áhugaverðast við þessa útgáfu er að með henni sér almenningur sennilega í fyrsta skipti í verki áherslu Microsoft á að lausnirnar okkar nýtist til fullnustu á þremur mismunandi skjáum: Á tölvunni, í símanum eða smátækinu og í netvafranum. Um leið sýnir Office Web Apps hvernig Microsoft er farið að veita þjónustu í gegnum tölvuský í auknum mæli, og það er þróun sem er bara rétt að byrja," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi. Hinn nýi Office-pakki er eins og fyrri útgáfur hannaður bæði með heimilis- og fyrirtækjanotkun í huga og geta notendur valið um nokkrar samsetningar eftir þörfum sínum. Microsoft Office 2010 fæst hjá fjölmörgum söluaðilum Microsoft-hugbúnaðar um land allt.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira