FME verði hluti af lausninni en ekki vandanum 16. nóvember 2010 06:00 Stjórnarformaðurinn Lilja Ólafsdóttir sagði að þegar hefði verið brugðist við gagnrýni.Fréttablaðið / pjetur
Viðskipti Fjármálaeftirlitið (FME) hefur alls kært 43 mál til sérstaks saksóknara frá stofnun síðarnefnda embættisins. Þar af hafa sextán mál verið kærð undanfarið ár. Þetta er meðal þess sem fram kom á ársfundi FME í gær. Í máli Lilju Ólafsdóttur, stjórnarformanns FME, kom fram að þegar hefði verið brugðist við athugasemdum sem fram komu í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis í garð FME. Hún sagði að ímyndunarafl og kunnátta fjármálamanna fyrir hrun hefði verið meira en svo að svifasein ríkisstofnun réði við það. Þeir hefðu verið eins og unglingar sem prófuðu allt sem þeir gátu en skildu ekki samfélagslega ábyrgð sína. Snar þáttur í að bæta ástandið væri að fræða fjármálafólk um hætturnar sem stafað geti af gjörðum þess. Gunnar Þ. Andersen, forstjóri FME, sagði morgunljóst að frekari hagræðingu þyrfti í fjármálakerfinu til að fyrirtækin skiluðu nægum arði. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, lagði í ræðu sinni áherslu á lagahyggjuna sem ríkti fyrir hrun. Bankamenn hafi verið sérfræðingar í að fara í kringum lögin en FME hafi einblínt á lagabókstafinn og ekki séð hvað var að. FME hafi verið hluti af vandamálinu og þurfi nú að vera hluti af lausninni. „Við skulum ekki halda að við getum tamið ljónið – við þurfum að læra að lifa með því og vera ávallt meðvituð um hversu hættulegt það er. Og við þurfum að vernda almenning,“ sagði Árni Páll. - sh
Mest lesið Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira