Um 2.200 fyrirtæki í þrot á síðasta ári 12. janúar 2010 06:30 Þrot Þakka má aðgerðum bankanna á síðasta ári fyrir að færri fyrirtæki fóru í þrot en áætlað var segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo.
Spá fyrirtækisins Creditinfo Íslands um að ríflega 3.500 fyrirtæki myndu fara í þrot á árinu 2009 gekk ekki eftir, en greiðsluþrot fyrirtækja á árinu voru alls um 2.200 talsins. Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, segir að í forsendum spárinnar, sem gerð var í upphafi síðasta árs, hafi verið tekið fram að yrði ekkert að gert stefndi í þennan mikla fjölda greiðsluþrota. Raunin hafi hins vegar verið sú að bankarnir hafi gripið til aðgerða, og áhrifa þeirra hafi tekið að gæta upp úr miðju ári. Það hafi leitt til þess að greiðsluþrotin hafi orðið færri en spá fyrirtækisins hafi gert ráð fyrir. Samkvæmt upplýsingum frá Creditinfo komust um 2.171 fyrirtæki í greiðsluþrot á árinu 2009. Með því er átt við að fyrirtækin voru til gjaldþrotaskipta eða gert var árangurslaust fjárnám. Ríflega helmingur þeirra störfuðu í byggingastarfsemi, verslun og þjónustu, eða í fasteignaviðskiptum. Alls urðu 823 fyrirtæki gjaldþrota fyrstu ellefu mánuði ársins í fyrra. Rakel segir að hefði niðurstaðan þrátt fyrir aðgerðir bankanna verið að 3.500 fyrirtæki hefðu farið í þrot hefði spáin annaðhvort verið of varfærin, eða aðgerðir bankanna ekki árangursríkar. „Við vorum meðvituð um það að við vorum að kalla á viðbrögð við þeirri stöðu sem upp var komin, og þau viðbrögð komu að einhverju leyti," segir Rakel. Ekki sé þó enn komið í ljós hvort fyrirtækjunum hafi verið bjargað í raun, eða hvort þeim hafi verið komið í tímabundið skjól með aðgerðum bankanna. Í fyrra voru stofnuð 2.665 fyrirtæki samkvæmt Hlutafélagaskrá, flest í verslun og þjónustu. Til viðbótar voru stofnuð 145 sameigna- og samlagsfélög, þar af um 36 í desember. Alls hafa 30 slík fyrirtæki verið skráð í Fyrirtækjaskrá í janúar, samkvæmt upplýsingum frá Creditinfo.- bj
Mest lesið Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Sjá meira