SP-Fjármögnun býður 20-40 % lækkun á höfuðstól 25. maí 2010 20:41
Viðskiptavinum SP-Fjármögnunar býðst að lækka höfuðstól erlendra bílalána og breyta þeim í verðtryggð eða óverðtryggð íslensk lán. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að lækkunin fari eftir myntsamsetningu lánsins og hvenær það var tekið. „Samkvæmt útreikningum SP-Fjármögnunar lækka um 80% lána til einstaklinga um 20-40% en meðaltalslækkun er 28%," segir einnig. „Með þessari lækkun tekur SP-Fjármögnun einhliða upp það ákvæði í frumvarpi félagsmálaráðherra, sem liggur fyrir á alþingi og lítur að höfuðstólslækkun erlendra lána. Þessum aðgerðum er einnig ætlað að stuðla að aukinni hreyfingu á bílamarkaðnum sem einkennst hefur af kyrrstöðu undanfarna mánuði," segir í tilkynningunni. Þá segir að fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum í rekstri bjóðist að meðaltali 25% lækkun á höfuðstól lána og samninga í erlendri mynt samfara því að breyta þeim í verðtryggð eða óverðtryggð lán eða samninga í íslenskum krónum. „SP-Fjármögnun býður viðskiptavinum sínum ennfremur að lengja lánstímann um 12 eða 24 mánuði, en þá gefst enn betra tækifæri til að stýra greiðslubyrði lánanna. Fyrirtækið mun ekki setja þak á hámarkslækkun höfuðstólsins. Höfuðstólslækkunin gildir fyrir þá lántakendur sem tóku lán eða samninga fyrir 8. október 2008 og er þeim að kostnaðarlausu." Að sögn verður hægt að sækja um höfuðstólslækkunina á heimasíðu SP-Fjármögnunar, www.sp.is. „Viðskiptavinir fyrirtækisins geta með veflykli, sem þeir fá sendan í heimabanka sinn, komist inn á lokað svæði á heimasíðunni þar sem þeir geta sótt um höfuðstólslækkunina. Frá því í október 2008 hafa þúsundir viðskiptavina SP-Fjármögnunar nýtt sér ýmis úrræði, sem fyrirtækið hefur boðið upp á, til að lækka greiðslubyrði erlendra bílalána. Lántakendur, sem þegar hafa nýtt sér úrræði fyrirtækisins, fyrirgera ekki rétti sínum bjóðist þeim betri leiðir."
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira