Róbert Wessman birtir starfslokasamning sinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. ágúst 2010 16:28 Róbert Wessman hefur birt starfslokasamning sinn.
Róbert Wessman þvertekur fyrir það að hafa verið rekinn úr starfi sem forstjóri lyfjafyrirtækisins Actavis árið 2008. Björgólfur Thor Björgólfsson hefur haldið því fram að Róberti hafi verið vikið úr starfi forstjóra eins og fram kemur á nýrri heimasíðu hans. Róbert hafnar því hins vegar alfarið og hefur máli sínu til stuðnings ákveðið að birta afrit af starfslokasamningi sínum við Actavis „Við gerðum formlegan samning um starfslokin og þar kemur hvergi fram að mér hafi verið vikið úr starfi heldur þvert á móti er tekið fram að samkomulag hafi náðst. Tekið er fram að uppsagnarfrestur verði greiddur sem var sex mánuðir og að ég styðji yfirfærslu verkefna til nýs forstjóra og verði aðgengilegur eftir þörfum. Ljóst má vera að hefði verið um brottrekstur að ræða hefðu bæði samningur og greiðslur til mín verið á annan veg. Ég vildi einfaldlega snúa mér að mínum eigin fjárfestingum og leiðir okkar skildu. Mér finnst áríðandi að rétt sé farið með þetta mál," segir Róbert. Róbert segir að varnarbarrátta Björgólfs til að verja skaddað mannorð sitt hafi nú tekið á sig nýja mynd og fjöldi manns vinni hörðum höndum til þess eins að þeyta ryki í augu almennings. Björgólfur virðist hreinlega neita að axla sína ábyrgð á þeim hrunadansi sem hér hafi orðið. Ekki verði hjá því komist að velta fyrir sér þeim kostnaði sem Björgólfur hafi nú varið í spunameistaravinnu og væri þeim peningum nú ekki betur varið í uppgjöri á skuldum fyrirtækja hans. „Ég ætla mér ekki munnhöggvast við Björgólf í fjölmiðlum en hvet hann eindregið til að verja sín umsvif í íslensku viðskiptalífi með staðreyndum en ekki endurteknum rangfærslum," segir Róbert.
Mest lesið Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Opna World Class í sömu götu og Reebok Fitness Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Sjá meira