Greiða niður erlendu lánin 31. mars 2010 06:00 Seðlabankastjóri greindi frá því á ársfundi bankans í síðustu viku að greidd hefðu verið niður erlend lán ríkisins.Fréttablaðið/pjetur
Skuldatryggingarálag ríkissjóðs hefur lækkað verulega síðustu daga, stóð í 373 stigum um hádegisbil í gær, og hafði þá ekki verið lægra síðan í lok október í fyrra. Álagið stóð í 458 stigum þegar forseti Íslands neitaði að staðfesta Icesave-lögin í byrjun janúar og rauk upp í 675 stig áður en það tók að lækka í febrúar. Þróun íslenska skuldatryggingarálagsins er þvert á þróun álagsins á erlendum mörkuðum. Venesúela og Argentína eru bæði með rúmlega 900 punkta álag og tróna á toppi lista Credit Market Analysis yfir þau tíu lönd sem eru með hæsta álagið. Ísland er í níunda sæti. Greining Íslandsbanka sagði í gær að sennilegasta ástæðan fyrir lækkun álagsins hér séu kaup Seðlabankans á skuldabréfum ríkissjóðs í erlendri mynt. Fram kom á ársfundi Seðlabankans í síðustu viku að bankinn hafi keypt á eftirmarkaði skuldabréf sem eru á gjalddaga á næsta og þarnæsta ári fyrir 91,1 milljón evra (15,8 milljarða króna). Annar flokkanna var gefinn út fyrir tæpum fjórum árum upp á einn milljarð evra. Með kaupunum lækka erlendar skuldir ríkissjóðs, líkt og Greining Íslandsbanka bendir á. - jab
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Sjá meira