Kevin Stanford þarf að greiða 450 milljónir vegna Ghost 29. nóvember 2010 09:29
Tískukóngurinn Kevin Stanford neyðist til að nota 2,5 milljónir punda, eða um 450 milljónir kr., af persónulegum auðæfum sínum til að borga fyrir helming af láni frá VBS. Lánið var notað til að koma á fót tískuverslununum Ghost á laggirnir fyrir nokkrum árum en Ghost varð síðar gjaldþrota. Það var Hæstiréttur sem kvað upp úrskurð nýlega um að Stanford bæri að greiða þessa upphæð. Engin veð voru fyrir láninu önnur en orð Stanfords sjálfs um að hann myndi standa skil á því. Hinn helmingur lánsins var á herðum Kcaj sjóðsins. Þrotabú Ghost var selt í árslok 2008. Kevin Stanford var um tíma fjórði stærsti hluthafinn í Kaupþingi á sama tíma og sá banki hafði veitt honum lán upp á samtals 450 milljónir punda eða um 81 milljarð kr. á núvirði. Þessi viðskipti eru til rannsóknar m.a. hjá sérstökum saksóknara. Stanford rekur nú tískuverslunarkeðjuna All Saints í samvinnu við Kaupþing. Í umfjöllun um málið í breska blaðinu Telegraph segir að auðæfi Stanfords séu ekki svipur hjá sjón miðað við fyrir nokkrum árum. Stanford var áður í hópu auðugustu manna í breska tískugeiranum með auðæfi upp á 220 milljónir punda. Hann náði ekki inn á lista Sunday Times um auðugustu menn Bretlands á síðasta ári.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira