Icelandair Group semur við Skyggni 25. júní 2010 10:19 Aftari röð: Þorvaldur Jacobsen framkvæmdastjóri tæknisviðs Skyggnis, Ómar Örn Jósepsson viðskiptastjóri hjá Skyggni, Hlynur Elísson framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandair og Elísabet Halldórsdóttir og Guðmundur B. Ingason, upplýsingatæknideild Icelandair. Fremri röð: Friðrik Þ. Snorrason, framkvæmdastjóri Skyggnis og Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group.
Icelandir Group hefur samið við tækni- og rekstarþjónustufyrirtækið Skyggni um rekstur á upplýsingatækniumhverfi félagsins til næstu þriggja ára. Í tilkynningu segir að samningurinn gildir fyrir Icelandair Group og öll dótturfélög þess, svo sem Icelandair, Flugfélag Íslands, Icelandair Cargo, IGS, Icelandair Hotels og Fjárvakur. Um er að ræða endurnýjun á samningi milli félaganna sem hefur verið í gildi frá árinu 2001. Helstu markmið samningsins eru að ná fram aukinni hagkvæmni, skilvirkni og öryggi í rekstri upplýsingatækniumhverfis Icelandair Group. Meðal einstakra verkefna á samningstímanum má nefna endurnýjun á Oracle umhverfi Icelandair Group og endurhögun á netþjóna- og afritunarumhverfi samstæðunnar. Ennfremur verður unnið að nýrri nálgun við rekstur útstöðva samstæðunnar. „Fyrirtækin innan Icelandir Group byggja starfsemi sína að stórum hluta á sölu á þjónustu í gegnum netið og þurfa því að reiða sig á hnökralausan rekstur söluvefja og annarra upplýsingatæknikerfa. Samvinna við Skyggni á þessu sviði hefur gengið vel og við höfum því miklar væntingar um að þróa samstarfið enn frekar, einkum með tilliti til aukinna gæða og hagkvæmni í rekstri," segir Hlynur Elísson, framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandair, sem leiðir upplýsingatæknimál fyrir samstæðuna. „Skyggnir hefur notið þess trausts að annast rekstur á umfangsmiklu upplýsingatæknikerfi Icelandair Group undanfarin ár. Það er okkur því mikil ánægja að fá tækifæri til þess að efla hið nána samstarf enn frekar og tryggja Icelandair Group áfram öryggi, gæði og hagræði í rekstri tölvukerfa þess," segir Friðrik Þ. Snorrason framkvæmdastjóri Skyggnis. Skyggnir er dótturfélag Nýherja. Hjá Skyggni starfa um 160 ráðgjafar í tækni- og rekstarþjónustu. Icelandair Group er samstæða fyrirtækja í flugi og ferðaþjónustu sem starfa um allan heim og hjá fyrirtækjum innan samstæðunnar starfa um 2.500 manns.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fleiri fréttir Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Sjá meira