Viðskipti innlent

Aukning á sölu skuldabréfa í útboðum

Heildarsala skuldabréfa í verðbréfaútboðum í maí 2010 nam 29,02 milljörðum kr. á söluverði samanborið við 26,98 milljarða kr. mánuðinn áður.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 4,41, milljörðum kr. en þar af voru 3,62 milljarðar kr. verðtryggð ríkisbréf, 0,36 milljarðar kr. bréf annarra lánastofnana og 0,44 milljarðar kr. bréf útgefin af sveitarfélögum.

Útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa námu 24,60 milljörðum kr. allt ríkisbréf.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×