Tæp 800 fyrirtæki gjaldþrota með 400 milljarða skuldir Hafsteinn Hauksson skrifar 3. júní 2010 12:20
780 fyrirtæki með útistandandi skuldir upp á 400 milljarða króna urðu gjaldþrota á síðasta ári, en árangurslaus fjárnám hafa verið gerð í 1.500 fyrirtækjum til viðbótar. Í gagnagrunni Seðlabanka íslands um skuldir fyrirtækja eru upplýsingar um 20 þúsund íslensk fyrirtæki. Samkvæmt nýjasta hefti Fjármálastöðugleika Seðlabankans voru um 780 þessara fyrirtækja orðin gjaldþrota í árslok 2009, en skuldir þeirra námu um 400 milljörðum króna, eða tæpum tíunda hluta eftirstöðva heildarskulda. Stærstur hluti eftirstöðvanna var hjá eignarhaldsfélögum. 20 fyrirtæki til viðbótar voru í greiðslustöðvun eða voru að leita eftir nauðasamningum þegar gögn voru tekin saman í febrúar, en skuldir þeirra námu tæpum 300 milljörðum. Hjá um 1.500 fyrirtækjum hefur farið fram árangurslaust fjárnám, en eftirstöðvar skulda þeirra nema nokkuð lægri fjárhæðum, eða um tveimur prósentum heildareftirstöðva lánasafnsins. Ljóst er að staða fjölmargra fyrirtækja er því erfið. Í lok apríl síðastliðnum var helmingur útlána viðskiptabankanna þriggja til stærri fyrirtækja í vanskilum umfram 90 daga, en um 36 prósent smárra og meðalstórra fyrirtækjalána. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær eru alls meira en 40 prósent af heildarútlánum stóru bankanna í vanskilum eða greiðsla þeirra þykir ólíkleg. Vanskil á Íslandi eru með allra mesta móti miðað við aðrar kerfislægar kreppur. Sem dæmi má nefna að í bankakreppunni sem reið yfir Norðurlöndin í upphafi tíunda áratugsins voru vanskil mest á bilinu 10 til 15 prósent, en í kreppunni sem reið yfir suðaustur Asíu undir lok sama áratugs voru vanskil að jafnaði innan við 35 prósent.
Mest lesið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Fleiri fréttir Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira