Viðskipti innlent

Ólöglegt að segja einstæðri móður upp

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það er bannað að reka einstæðar mæður. Mynd/ afp.
Það er bannað að reka einstæðar mæður. Mynd/ afp.
Í Danmörku er ólöglegt að reka konur úr starfi á grundvelli þess að þær eru einstæðar mæður, samkvæmt dómi sem kveðinn var upp nýlega.

Fyrirtæki vísaði einstæðri móður úr starfi vegna þess að hún var ósveigjanlegri í starfi þær vikur þegar börnin voru hjá henni. Fyrirtækið var dæmt til að greiða konunni laun í 26 vikur eftir uppsögnina. Skaðabæturnar nema 175 þúsund dönskum krónum, að því er fram kemur í frétt á vefnum epn.dk.

Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, segist í samtali við Vísi ekki kannast við það að hér á landi hafi komið upp sambærilegt tilfelli. Hún muni ekki til þess að það hafi verið felldir dómar vegna uppsagna hér á landi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×