ALP bílaleigan kaupir 160 Volkswagen Golf og Polo 12. mars 2010 15:42 Sverrir Viðar Hauksson framkvæmdastjóri HEKLU (t.v.) og Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri ALP undirrita samninginn í sýningarsal HEKLU við Laugaveg.
Gengið hefur verið frá samningi milli HEKLU og bílaleigunnar ALP, umboðsaðila AVIS og BUDGET á Íslandi, um kaup bílaleigunnar á 160 nýjum Volkswagen Golf og Volkswagen Polo. Hekla mun afhenda bílana á vormánuðum. Í tilkynningu segir að Volkswagen bílarnir hafa reynst mjög áreiðanlegir og hafa unnið til fjölda viðurkenninga á undanförnum árum og áratugum. Þannig var Volkswagen Golf nýlega valin öruggasti bíllinn af óháðum samtökum um árekstraprófanir í Evrópu og þá hefur Volkswagen Polo meðal annars verið valinn bíll ársins 2010 af bílatímaritinu AutoBild. „Við erum mjög ánægð með þennan samning enda eru Volkswagen bílarnir þekktir fyrir áreiðanleika og gæði," segir Björn Ragnarsson framkvæmdastjóri ALP. Hann segir útlit fyrir að mikil eftirspurn verði eftir bílaleigubílum í sumar og því sé mikilvægt að velja samstarfsaðila með góða bíla og hátt þjónustustig. „Við leggjum áherslu á að bjóða nýlega og góða bíla en það er liður í að veita viðskiptavinum okkar afburða þjónustu. Því er það okkur mikil ánægja að gera þennan samning við HEKLU. Miðað við aðstæður í gengismálum eru verðin einnig mjög hagstæð," segir Björn. Sverrir Viðar Hauksson framkvæmdastjóri HEKLU segir samninginn við ALP til vitnis um gott samstarf HEKLU og ALP á síðustu árum. „Volkswagen eru annálaðir fyrir gæði og við hjá HEKLU höfum kappkostað að bjóða upp á hátt og gott þjónustustig. Þess vegna má segja að þessi samningur byggi á trausti og góðri reynslu," segir Sverrir Viðar Hauksson.
Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Sjá meira