BM Vallá fær heimild til greiðslustöðvunar 3. febrúar 2010 14:18
Í dag, miðvikudaginn 3. febrúar, var BM VALLÁ hf. veitt heimild til greiðslustöðvunar svo unnt verði að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Undanfarið ár hefur starfsfólkið unnið hörðum höndum að endurskipulagningu félagsins með víðtækum sparnaðar- og hagræðingaraðgerðum í góðri samvinnu við helstu lánadrottna félagsins.Í tilkynningu segir að áætlanir um fjárhagslega endurskipulagningu BM VALLÁ hafa verið kynntar helstu lánveitendum félagsins. Að höfðu samráði við þá var talið rétt að óska formlegrar greiðslustöðvunar með aðstoðarmanni svo ljúka mætti verkinu á hlutlægan og skipulegan hátt.Frá miðju ári 2008 hefur orðið gríðarlegur samdráttur í verklegum framkvæmdum hér á landi sem endurspeglast í minnkandi umsvifum félagsins. Árið 2007 var samanlögð velta BM VALLÁ tæplega 10 milljarðar króna og starfsmenn liðlega 500.Í lok ársins 2009 var starfmannafjöldinn kominn niður í 232 og heildarvelta fyrirtækisins var tæplega 5 milljarðar. Veltan í krónum skrapp saman um helming milli áranna. Þá hefur gengisfall krónunnar tvöfaldað langtímaskuldir félagsins og orsakað miklar verðhækkanir á hráefnum og aðföngum sem hafa haft veruleg áhrif á reksturinn.Á einstökum framleiðslusviðum fyrirtækisins varð magnsamdráttur sem nam frá 40-70%. Mestur samdráttur var í nýframkvæmdum en minni í sérstökum verkefnum svo sem við Bolungarvíkurgöng og jarðgöngin í Héðinsfirði. Þá reyndist sala á framleiðsluvörum til viðgerða og viðhalds fasteigna halda vel sjó. Sama er að segja um sölu á vörum fyrir garða og umhverfið.Eftir mikinn samdrátt undanfarinna missera sjást nú loks fyrstu merki um viðsnúning. Áætlanir félagsins fyrir árið 2010 gera ráð fyrir að botni verði náð á fyrsta ársfjórðungi og að velta ársins verði á bilinu 5.2 - 5.6 milljarðar króna og að afkoman á árinu verði vel viðunandi að lokinni endurskipulagningu.Á síðustu tveim árum hefur BM VALLÁ notið velvildar og þolinmæði lánardrottna sinna, stórra sem smárra og kann bestu þakkir fyrir það. Þá má ekki gleyma mikillar og góðrar vildar þúsunda viðskiptavina sem sumir hverjir hafa átt viðskipti við félagið frá upphafi. Þetta hefur skipt sköpum í þeim lífróðri sem staðið hefur linnulaust frá því á árinu 2008.BM VALLÁ hf. rekur starfsemi sína á 11 stöðum á landinu. Helstu framleiðsluvörur fyrirtækisins eru steinsteypa, völsun þakstáls og áls, húshlutaeiningar úr steinsteypu, stáli og límtré, hellur og steinar og fleiri vörur til garða og umhverfis, þurrblöndur til múrverks og margt fleira. Þá starfrækir félagið hönnunardeild fyrir byggingalausnir auk deildar sem sérhæfir sig í dúklagningu þaka, og rekstur stoð- og þjónustudeilda svo sem véla- og bifreiðaverkstæðis rafmagn-, blikk- og járnsmíðaverkstæðis svo nokkuð sé nefnt.Aðstoðarmaður félagsins í greiðslustöðvunarferlinu er Óskar Sigurðsson hrl .
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira