Yfirlýsingar Breta um eignir Landsbankans eru endaleysa Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. janúar 2010 12:17
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptarápherra, sagði í samtali við fréttastofu að yfirlýsingar Breta um að ganga að eftirstandandi eignum Landsbankans séu einhver misskilningur og lagaleg endaleysa. Landsbankinn sé þrotabú og í raun í eigu Breta og Hollendinga. Gylfi segir að ef Bretar ætluðu að gera alvöru úr hótunum sínum myndi slíkt fyrst og fremst bitna á Hollendingum þannig. Hann segist því eiga erfitt með að sjá að þetta verði nokkurn tímann staðreynd. Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans, sagði í samtali við fréttastofu að skilanefndin hefði ekki fengið neinar tilkynningar frá breskum stjórnvöldum um að þeir fjármunir sem safnast hafa inn á reikninginn í Englandsbanka verði hugsanlega gerðir upptækir af Bretum í kjölfar synjunar forsetans. Fram kemur á vef breska dagblaðsins The Times í dag að breska fjármálaráðuneytið telji sig geta lagt hald á eftirstandandi eignir Landsbankans í Bretlandi í kjölfar synjunar forsetans. Ráðherra bankamála í Bretlandi hefur hótað Íslendingum að ef íslenska þjóðin hafni Icesave-lögunum verði Íslendingar útilokaðir frá alþjóðlegum fjármálamörkuðum og muni ekki fá að ganga í Evrópusambandið. Bretar hafa hótað að taka yfir eftirstandandi eignir Landsbankans og Gordon Brown hefur hótað Íslendingum diplómatísku stríði. Þess má geta að Bretar og Hollendingar eiga nú þegar allar forgangskröfur í þrotabú Landsbankans og þar með eignir hans. Afborganir af útlánasafni Landsbankans hafa safnast inn á reikning í Englandsbanka og áttu þessir fjármunir að verða tiltækir fyrir skilanefnd bankans á þessu ári. The Times greinir frá því að nú séu að hefjast viðræður milli Breta og Hollendinga um málið og að af hálfu Breta muni Alistair Darling, fjármálaráðherra og Lord Myners, ráðherra bankamála, leiða þær viðræður.
Mest lesið Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Hvað á að gera við fermingarpeningana? Viðskipti Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Viðskipti innlent Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Viðskipti innlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Sjá meira