Áfengisala minnkaði um rúm 13% í febrúar 15. mars 2010 07:56
Sala áfengis minnkaði um 13,1% í febrúar miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í febrúar 12,7% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 18,2% hærra í febrúar síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra.Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að neysla áfengis virðist fara hratt minnkandi ef marka má þann mikla samdrátt sem orðið hefur í sölu þess að undanförnu. Ljóst er að verðhækkanir hafa haft þessi áhrif.Á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs hefur orðið 14% samdráttur í seldu magni áfengis og verðið í febrúar var 18,2% hærra en í febrúar 2009. Þess má geta að á meðan verð á áfengi og tóbaki hér á landi hækkaði um 20,3 á tímabilinu janúar 2009 til janúar 2010, þá nam meðalhækkun áfengis og tóbaks á hinum Norðurlöndunum 4,6%.Velta í dagvöruverslun dróst saman um 1,1% á föstu verðlagi í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 5,4% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta dagvöruverslana í febrúar um 0,8% frá febrúar í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 6,5%á þessu 12 mánaða tímabili.Fataverslun var 5,2% minni í febrúar miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi en jókst um 6,5% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta fataverslunar um 5,2%. Verð á fötum var 12,4% hærra í febrúar síðastliðnum en í sama mánuði ári fyrr.Velta skóverslunar dróst saman um 9,2% í febrúar á föstu verðlagi og jókst um 8,9% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta skóverslunar saman um 9,2%. Verð á skóm hækkaði í febrúar um 19,9% frá febrúar í fyrra.Velta húsgagnaverslana var 27,2% minni í febrúar en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 16,9% minni á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 14,1% hærra í febrúar síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra.Sala á raftækjum í febrúar jókst um 2% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 16,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum hækkaði um 13,8% frá febrúar 2009.Í febrúar síðastliðnum var raunsamdráttur í verslun hér á landi í samanburði við sama mánuð í fyrra. Það var aðeins í raftækjaverslun sem salan jókst um 2% frá fyrra ári, en var samt 52% minni en fyrir tveimur árum. Húsgagnaverslun hefur minnkað um 62% á síðustu tveimur árum, fataverslun um 27,7%, dagvöruverslun um 14,7% og áfengisverslun um 27,3%. Í öllum tilvikum er um raunveltu að ræða.Undanfarna mánuði hefur heldur dregið úr þeim samdrætti sem varð í dagvöruverslun strax eftir hrun bankanna í lok 2008. Þá hefur innflutningur á matar- og drykkjarvörum aukist lítillega samkvæmt upplýsingum um vöruinnflutning hjá Hagstofu Íslands, mælt á föstu gengi. Þannig var innflutningur á matar- og drykkjarvöru 0,8% meiri í janúar síðastliðnum en í janúar 2009.Dregið hefur úr verðhækkunum á matvörum og eru þær mun minni en í öðrum vöruflokkum. Í janúar hafði verð á matar- og drykkjarvöru aukist um 5,8% frá sama mánuði árið áður. Til samanburðar má geta þess að verð á þessum sömu vörum lækkaði um 1,2% að jafnaði á hinum Norðurlöndunum og um 0,6% að meðaltali innan ESB. Þessar upplýsingar má finna í samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofan birtir.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira