Viðskipti innlent

Meirihluti andvígur almennri skuldaniðurfellingu

Um 43% Íslendinga eru andvíg almennri skuldaniðurfellingu, en þriðjungur er hins vegar fylgjandi því að lífeyrissjóðir taki þátt í niðurfellingu húsnæðisskulda þó það leiði til þess að lífeyrisgreiðslur kunni að skerðast.

Þá ályktun má að minnsta kosti draga af niðurstöðum viðhorfskönnunar um lífeyrismál á vegum Miðlunar ehf.

Fjallað er um málið á vefsíðu Landsamtaka lífeyrissjóðanna. Þar segir að þetta var netkönnun sem framkvæmd var 20. október til 16. nóvember 2010. Upphaflegt úrtak var valið af handahófi úr þjóðskrá, fólk á aldrinum 18-75 ára, alls 1.600 manns. Þar af svöruðu 863 eða 54%.

Ein spurninganna sem lögð var fyrir viðmælendur hljóðaði svo:

Hversu fylgjandi eða andvígur ert þú því að lífeyrissjóðir taki þátt í skuldaniðurfellingu húsnæðislána, þó það þýði að lífeyrisgreiðslur myndu mögulega skerðast?

Niðurstaðan var sem hér segir:

Mjög fylgjandi 5,6%

Frekar fylgjandi 23,6%

Tekur ekki afstöðu 28%

Frekar andvígur 25,1%

Mjög andvígur 17,8%

Þegar niðurstöður eru dregnar saman eru með öðrum orðum 29,1% fylgjandi, 42,9% andvígir og 28% hvorki fylgjandi né andvígir.

Karlar eru greinilega hlynntari þessum hugmyndum en konur og fólk á höfuðborgarsvæðinu er ívið hlynntara hugmyndunum en landsbyggðarbúar. Stuðningur er mestur hjá fólki með fjölskyldutekjur á bilinu 550-799 þúsund krónur á mánuði en minnstur hjá þeim sem hafa undir 250 þús. krónum í fjölskyldutekjur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×