Meirihluti andvígur almennri skuldaniðurfellingu 30. nóvember 2010 10:57
Um 43% Íslendinga eru andvíg almennri skuldaniðurfellingu, en þriðjungur er hins vegar fylgjandi því að lífeyrissjóðir taki þátt í niðurfellingu húsnæðisskulda þó það leiði til þess að lífeyrisgreiðslur kunni að skerðast. Þá ályktun má að minnsta kosti draga af niðurstöðum viðhorfskönnunar um lífeyrismál á vegum Miðlunar ehf. Fjallað er um málið á vefsíðu Landsamtaka lífeyrissjóðanna. Þar segir að þetta var netkönnun sem framkvæmd var 20. október til 16. nóvember 2010. Upphaflegt úrtak var valið af handahófi úr þjóðskrá, fólk á aldrinum 18-75 ára, alls 1.600 manns. Þar af svöruðu 863 eða 54%. Ein spurninganna sem lögð var fyrir viðmælendur hljóðaði svo: Hversu fylgjandi eða andvígur ert þú því að lífeyrissjóðir taki þátt í skuldaniðurfellingu húsnæðislána, þó það þýði að lífeyrisgreiðslur myndu mögulega skerðast? Niðurstaðan var sem hér segir: Mjög fylgjandi 5,6% Frekar fylgjandi 23,6% Tekur ekki afstöðu 28% Frekar andvígur 25,1% Mjög andvígur 17,8% Þegar niðurstöður eru dregnar saman eru með öðrum orðum 29,1% fylgjandi, 42,9% andvígir og 28% hvorki fylgjandi né andvígir. Karlar eru greinilega hlynntari þessum hugmyndum en konur og fólk á höfuðborgarsvæðinu er ívið hlynntara hugmyndunum en landsbyggðarbúar. Stuðningur er mestur hjá fólki með fjölskyldutekjur á bilinu 550-799 þúsund krónur á mánuði en minnstur hjá þeim sem hafa undir 250 þús. krónum í fjölskyldutekjur.
Mest lesið Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira