VÍ segir fjármagnstekjuskatt hamla endurreisninni 11. mars 2010 13:39
Viðskiptaráð Íslands (VÍ) hefur birt nýja skoðun á vefsíðu sinni þar sem hækkun á fjármagnstekjuskatti er gagnrýnd og sögð hamla endurreisn atvinnulífsins. Stjórnvöld séu að vinna hugmyndafræðilega sigra frekar en að leita eftir hagfelldustu leið til lausna.Á vefsíðunni segir: „Allt frá hruni bankakerfisins hefur legið fyrir að mikil uppstokkun væri framundan í ríkisfjármálum. Til að brúa þá gjá sem myndast hefur í rekstri hins opinbera þurfa stjórnvöld að auka skatttekjur og skera niður útgjöld. Hvorug þessara aðgerða er vinsæl enda fela báðar í sér rýrnun lífsgæða fyrir einhverja hópa samfélagsins. Í aðgerðum til úrlausnar verða stjórnvöld að sýna kjark og framsýni til að tryggja að þær aðgerðir sem ráðist er í skerði ekki möguleika til vaxtar hagkerfisins til frambúðar.Þrátt fyrir að hamingja ráðist ekki af fjármunum einum saman er undirstaða góðra lífskjara fólgin í hárri framleiðni og verðmætasköpun, nánar tiltekið hagvexti. Í grunninn eru það þrír þættir sem stuðla að langtímahagvexti: Fjármagn, mannauður og tækniframfarir.Óhætt er að segja að á undanförnum mánuðum hafi verið vegið að þeim fyrstnefnda , þ.e. fjárfestingarumhverfinu. Sú stefna virðist hafa verið mörkuð af stjórnvöldum að jafna eigi skattgreiðslur af launatekjum og fjármagnstekjum.Liður í því hefur verið að hækka fjármagnstekjuskatt úr 10% í 18%, eða um 80% á síðustu 15 mánuðum. Hins vegar ber þessi stefnumörkun með sér skeytingarleysi við eðli þeirra skattstofna sem liggja þar að baki og ber með sér að verið sé að vinna hugmyndafræðilega sigra frekar en að leita eftir hagfelldustu leið til lausna. Eðlilegar ástæður liggja að baki því að fjármagnstekjuskattur skuli vera lægri en tekjuskattur og eru þær tíundaðar nánar í skoðuninni.Hækkun fjármagnstekjuskatts dregur úr hvata til fjárfestingar sem er forsenda endurreisnar atvinnulífsins. Auka þarf fjárfestingu sem getur aðeins átt sér stað með tvennum hætti. Annars vegar má nýta innlendan sparnað til fjárfestinga og hins vegar má leita eftir erlendri fjárfestingu. Hvort tveggja verður fyrir umtalsverðum neikvæðum áhrifum af hærri fjármagnstekjuskatti á tíma þegar þörfin hefur sjaldan eða aldrei verið brýnni."Skoðunina í heild sinni má nálgast hér.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira