Kortanotkun bendir til að jafnvægi sé að nást í einkaneyslu 11. mars 2010 12:12
Ef marka má greiðslukortanotkun landsmanna virðist einkaneysla landans vera að ná einhvers konar tímabundnu jafnvægi eftir mikinn samdrátt undanfarin misseri.Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu og rýnir í tölur um greiðslumiðlun sem Seðlabankinn birti í gær, Samkvæmt þeim nam kreditkortavelta landsmanna í febrúarmánuði 24,5 milljörðum kr. sem er í krónum talið um það bil 2 milljörðum kr. meiri velta en í sama mánuði í fyrra.Þegar leiðrétt hefur verið fyrir þróun verðlags og gengis er ljóst að velta á kreditkortum var 1,4% meiri að raungildi í febrúar borið saman við febrúar 2009. Þetta er þriðja mánuðinn í röð sem að heildarkreditkortavelta landans eykst að raunvirði frá sama mánuði árið á undan.Þessi viðsnúningur er ekki síst tilkominn vegna aukinnar notkunar landsmanna á kreditkortum erlendis sem hrundi með bönkunum haustið 2008 samhliða því sem utanlandsferðir Íslendinga drógust saman um allt að þriðjung.Núna sýna tölur Ferðamálastofu hinsvegar að Íslendingar láta í auknum mæli undan útþrá sinni og þessar tölur endurspegla það. Þessi viðsnúningur í þróun kreditkortaveltu gefur vísbendingu um að byrjað sé að vinda ofan af þeim samfellda samdrætti sem varað hefur yfir í kreditkortaveltu allt frá síðsumri 2008.Kortavelta gefur góða vísbendingu um þróun einkaneyslu. Sé kortavelta að ná jafnvægi gæti það því gefið vísbendingu um að einkaneysla byrji senn að taka við sér eftir gríðarlegan samdrátt síðustu missera, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira