Áhugi á að kaupa eina af stærri breskum eignum Kaupþings 9. febrúar 2010 08:42
Nokkrir fjárfestar hafa lýst áhuga á því að kaupa, Bay Restaurant Group (Bay), eina af stærri eignum Kaupþings í Bretlandi. Bay var áður í eigu auðmannsins Robert Tchenguiz fyrrum stjórnarmanns í Exista. Kauipþing leysti til sín þessa eign í fyrra.Fjallað er um málið á Timesonline en þar kemur fram að Bay er eignarhaldsfélag veitingahúsakeðjanna La Tasca og Ha Ha Bar and Grill. Times hefur heimildir fyrir því að fjárfestar hafi áhuga á að kaupa Bay en jafnframt fylgir sögunni að Kaupþingi liggi ekkert á að selja.Bay, og systurfélag þess Town & City, tilheyrðu eitt sinn Laurel Pub Company félagi Tchenguiz. Í mars á síðasta ári innkallaði Kaupþing hundruðir milljóna punda af lánum Tchenguiz og eignaðist þar með bæði félögin. Eftir að hafa breytt skuldum í hlutafé komust bæði félögin að fullu undir stjórn Kaupþings.Talið er að fyrir Bay geti fengist um 200 milljónir punda, eða rúmlega 40 milljarðar kr. Undir nafni Tasca eru nú reknir 73 veitingastaðir og 24 undir Ha Ha Bar and Grill.Sem fyrr segir er liggur Kaupþingi ekkert á að selja þessar eignir og samkvæmt Times mun það ekki verða gert nema fullt verð fáist fyrir þær.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira