Fjallað er um málið í blaðinu Independent. Þar segir að Sutherland, best þekktur sem Jack Bauer í 24, hafi komist í samband við nautgripasalann í gegnum fjármálaráðgjafa sinn. Í fyrstu gengu viðskiptin vel en þau fólust í að kaupa nautgripi í Mexíkó og reka þá yfir landamærin til Bandaríkjanna þar sem þeir voru svo seldir.
Í fyrstu setti Sutherland 550.000 dollara í þessi viðskipti og hagnaðist um 130.000 dollara. En í framhaldinu var stjarnan illa svikin af nautgripasalanum. Hann tók næstu peningasummu frá Sutherland og notaði hana til að borga persónulegar skuldir sínar.
Sutherland kærði málið til lögreglu og mun nautgripasalinn koma fyrir rétt í næsta mánuði. Hann horfir fram á allt að 18 ára fangelsi fyrir þessi fjársvik.