Fleiri kröfur í Kaupþing en Glitni og LÍ 5. janúar 2010 04:00 Unnið við skráningu krafna. Búist er við að tæplega þrjátíu þúsund kröfum verði lýst í bú Kaupþings. Unnið verður á vöktum við skráningu krafnanna. Fréttablaðið/Valli
Áætlað er að á bilinu 27 þúsund til 29 þúsund kröfur hafi borist í þrotabú Kaupþings. Um þrjátíu manns hafa unnið við móttöku og skráningu krafna síðustu vikur og hefur hópurinn nú þegar lokið við að skrá 23 þúsund kröfur í bú Kaupþings. Frestur til að gera kröfu í bú bankans rann út 30. desember síðastliðinn. Magnið er í takt við væntingar, að sögn Ólafs Garðarssonar lögmanns sem situr í slitastjórn bankans. „Við áttum von á allt að þrjátíu þúsund kröfum í bankann. Flestar kröfurnar koma frá Þýskalandi, sparifjáreigendum sem gera vaxtakröfur vegna innstæðna sem þegar hafa verið greiddar út," segir hann. Hæsta skráða krafan fram til þessa hljóðar upp á um tvö hundruð milljarða króna en sú lægsta nemur tæpum tveimur evrum, jafnvirði tvö hundruð króna. Flestar kröfurnar eru frá Þýskalandi en heildarkröfur eru frá 111 löndum, samkvæmt tilkynningu frá skilanefnd Kaupþings. Ekkert hefur verið gefið út um heildarupphæð krafna. Eins og áður hefur komið fram er ekki útilokað að kröfuhafahópi Kaupþings muni svipa til kröfuhafahóps Glitnis en þar voru fyrirferðarmiklir bandarískir fjárfestingarsjóðir sem höfðu keypt skuldabréf gömlu bankanna eftir hrun þeirra. Kröfuhafaskrá Kaupþings verður birt í heild sinni á vefsvæði fyrir kröfuhafa 22. janúar næstkomandi og er gert ráð fyrir að unnið verði á vöktum til að ljúka skráningunni en mikið magn fylgiskjala getur fylgt hverri kröfu. Viku eftir birtingu kröfuskrár verður fundað með kröfuhöfum þar sem farið verður yfir skrána og afstöðu slitastjórnar til lýstra krafna. jonab@frettabladid.is
Tengdar fréttir Hæsta krafan í Kaupþing nemur 200 milljörðum Hæsta krafan í Kaupþing nemur 200 milljörðum kr. en sú lægsta nemur 250 kr. Kröfur í Kaupþing hafa borist frá 111 löndum en flestar þeirra koma frá Þýskalandi. 4. janúar 2010 15:20 Seinagangur eitt þúsund kröfuhafa Slitastjórn Kaupþings hafa borist rúmlega eitt þúsund kröfur eftir að sex mánaða frestur til að lýsa kröfum í bankann rann út fyrir tæpri viku. Þrátt fyrir rúman tíma til að senda inn kröfurnar eru mörg bréfanna dagsett á milli jóla og nýárs. Leiða má líkum af því að slæmt veður víða í Evrópu undanfarnar vikur hafi haft áhrif á að umrædd bréf bárust ekki fyrr en fresturinn var runnin út. Samkvæmt heimildum fréttastofu er að megninu til ekki um að ræða háar kröfur. 4. janúar 2010 21:11 Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira
Hæsta krafan í Kaupþing nemur 200 milljörðum Hæsta krafan í Kaupþing nemur 200 milljörðum kr. en sú lægsta nemur 250 kr. Kröfur í Kaupþing hafa borist frá 111 löndum en flestar þeirra koma frá Þýskalandi. 4. janúar 2010 15:20
Seinagangur eitt þúsund kröfuhafa Slitastjórn Kaupþings hafa borist rúmlega eitt þúsund kröfur eftir að sex mánaða frestur til að lýsa kröfum í bankann rann út fyrir tæpri viku. Þrátt fyrir rúman tíma til að senda inn kröfurnar eru mörg bréfanna dagsett á milli jóla og nýárs. Leiða má líkum af því að slæmt veður víða í Evrópu undanfarnar vikur hafi haft áhrif á að umrædd bréf bárust ekki fyrr en fresturinn var runnin út. Samkvæmt heimildum fréttastofu er að megninu til ekki um að ræða háar kröfur. 4. janúar 2010 21:11