Hönnuður sakaður um vopnaburð 6. október 2010 17:30 Sruli Recht er gefið að sök að hafa flutt inn ólögleg vopn en um er að ræða regnhlífar með hnúajárni í stað handfangs. Fréttablaðið/Vilhelm
Aðalmeðferð í máli Ríkislögreglustjóra gegn ástralska hönnuðinum Sruli Recht fór fram í sal 202 í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Sruli er gefið að sök að hafa haft undir höndum vopn sem hann hafi ekki haft leyfi fyrir en um er að ræða regnhlífar með hnúajárni fyrir handfang. Leikhús fáranleikans, segir lögmaður Sruli, Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson. Að sögn Sruli voru hnúajárnin sérframleidd í Kína. Þegar hann hugðist vitja þeirra var hann stoppaður af tollinum og tilkynnt að hann þyrfti sérstakt leyfi fyrir framleiðslunni. „Þannig að ég varð mér úti um slíkt og fékk hnúajárnin.“ Vilhjálmur Hans bætir því við að Sruli hafi skrifað bréfið til Ríkislögreglustjóra á ensku en fengið svar á íslensku. „Og hann skilur ekki íslensku nema að takmörkuðu leyti,“ segir Vilhjálmur. Þegar regnhlífarnar voru hins vegar komnar upp mættu lögreglumenn á staðinn og gerðu þau upptæk, þar sem leyfi Sruli hljómaði bara upp á eitt hnúajárn, ekki fjögur. „Lögreglan sagði að þetta væri mér að kenna, ég hefði átt að lesa leyfisbréfið betur.“ Vilhjálmur segir hnúajárnin margfalt léttari en venjuleg hnúajárn, þeim fylgi því engin höggþyngd. „Það fylgir þeim því minni hætta en stafar af venjulegum hamri. Svo eru líka til verk þar sem hnúajárn eru notuð, svo sem blómapottar, kaffibollar og svona mætti lengi telja,“ segir Vilhjálmur.- fgg
Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Fleiri fréttir Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Sjá meira