Framtakssjóðurinn eygir von um að ná aftur hluta af tapi lífeyrissjóðanna 6. október 2010 06:00 „Til greina kemur að selja erlendum aðilum hlut í Framtakssjóðnum,“ segir framkvæmdastjóri hans. Hann blæs á gagnrýni á fjárfestingar sjóðsins. Markaðurinn/GVA „
Það gefur auga leið að í hruninu fóru fjölmörg góð fyrirtæki illa. Þau eru í tímabundnum erfiðleikum, lentu inni í bönkunum og bjóðast nú til kaups. Við ætlum að nýta þetta tækifæri," segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Sextán lífeyrissjóðir stofnuðu sjóðinn í desember í fyrra. Finnbogi hefur lýst því yfir að með sjóðnum eygi lífeyrissjóðirnir tækifæri til að endurheimta hluta þeirrar glötuðu ávöxtunar sem hvarf í hruninu. „Ég trúi því að þessar fjárfestingar skili góðri ávöxtun," segir hann. Markmiðið er að minnsta kosti fimmtán prósenta ársávöxtun. „Ég yrði ekki ánægður með minna." Lokaður sjóður1Framtakssjóðurinn er byggður á erlendri fyrirmynd einkaframtakssjóða (e. private equity funds). Sjóðirnir safna fjárfestum í ákveðinn tíma áður en þeim er lokað. Stefnt er á að loka dyrum Framtakssjóðsins á fyrstu mánuðum næsta árs. Gert er ráð fyrir að fjárfestingum Framtakssjóðsins verði lokið fyrir árslok 2013. Stefnt er að því að hann eigi eignir í fjögur til sjö ár en selji þær síðan eða skrái á hlutabréfamarkað. Gríðarleg kaupgeta2Stefnt er að því að Framtakssjóðurinn ráði yfir sextíu milljörðum króna. Samkvæmt reglum Framtakssjóðsins er lágmarksfjárfesting hans tvö hundruð milljónir króna en hámarksfjárfesting í einu verkefni nemi fimmtán prósentum af stærð hans. Fari sjóðurinn í sextíu milljarða getur hann varið níu milljörðum að hámarki í kaup á einu fyrirtæki. Skoða öll tækifæri3Einu kaup sem Framtakssjóðurinn hefur lokið er þrjátíu prósenta hlutur í Icelandair Group. Áreiðanleikakönnun stendur enn yfir á eignarhaldsfélaginu Vestia, sem sjóðurinn kaupir af Landsbankanum fyrir 19,5 milljarða króna. Búist er við að henni ljúki í lok mánaðar. Hljóti einhver fyrirtækjanna ekki náð fyrir augum Framtakssjóðsins verða þau send aftur til föðurhúsa. Eins og sést á meðfylgjandi töflu snerta eignir Framtakssjóðsins flesta atvinnugeira nema helst fjármálageirann. Finnbogi segir alla möguleika í skoðun. „Ég hef frekar séð fyrir mér að lífeyrissjóðirnir muni sjálfir fjárfesta beint í bönkunum. Mér þykir það líklegast, en það er ekkert útilokað að Framtakssjóðurinn yrði meðfjárfestir í slíku ef áhugaverð tækifæri gefast," segir hann. Gagnrýni svaraðFramtakssjóðurinn hefur sætt gagnrýni fyrir fjárfestingar sínar, ekki síst í fyrirtækjum sem eiga í samkeppni við önnur. Finnbogi segir fjárfestingar Framtakssjóðsins ekkert frábrugðnar fjárfestingum erlendra lífeyrissjóða. Hann nefnir kaup danskra sjóða á bankanum FIH af skilanefnd Kaupþings. „Þeir sem halda þessu fram eru í raun að segja að lífeyrissjóðirnir eigi ekki að fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum. Ég er algerlega ósammála þessu sjónarmiði. Satt best að segja veit ég ekki hvernig íslenskt atvinnulíf og lífsskilyrði á Íslandi mundu þróast ef lífeyrissjóðirnir okkar myndu algerlega neita að koma að fjárfestingum í nýsköpun, þróun og endurreisn íslensks atvinnulífsins," segir hann og bendir á að lífeyrissjóðir um heim allan fjárfesti í atvinnufyrirtækjum sem eigi í samkeppni. Erlendir fjárfestarErlendir fjárfestar hafa sýnt áhuga á því að kaupa hlut í Framtakssjóðnum. Finnbogi segir það koma vel til greina. „Það væri að mínu mati mjög jákvætt fyrir okkur að fá áhættufé inn í landið með þeim hætti. Það liggur fyrir að lífeyrissjóðirnir munu alltaf eiga meirihluta hlutafjár í Framtakssjóðnum, en ég myndi taka því fagnandi ef erlendir aðilar vildu fjárfesta í sjóðnum," segir hann. Málið er í skoðun og engin niðurstaða komin í það.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira