ÍE framvegis stjórnað af Earl "Duke" Collier og Kára Stefánssyni 21. janúar 2010 15:25
Íslenskri erfðagreiningu (ÍE) verður framvegis stjórnað af tveggja manna framkvæmdastjórn sem mynduð er af Earl "Duke" Collier, fyrrum framkvæmdastjóra hjá líftæknifyrirtækinu Genzyme Corporation, sem hefur tekið við starfi forstjóra, og Kára Stefánssyni sem er starfandi stjórnarformaður og yfirmaður rannsóknasviðs. Í tilkynningu um málið segir að Íslensk erfðagreining stígur í dag fram á sjónarsviðið sem traust einkafyrirtæki sem notar niðurstöður erfðarannsókna til að þróa vörur og þjónustu sem hafa það að markmiði að efla lýðheilsu. Fyrirtækið byggir á þeim mikla árangri sem það hefur náð á undanförnum árum sem dótturfélag deCODE genetics, Inc., en í þessari viku var gengið frá kaupum á Íslenskri erfðagreiningu af fyrrum móðurfélagi þess. Kaupandinn, Saga Investments LLC, er fjárfestahópur sem leiddur er af Polaris Ventures og ARCH Venture Partners, þekktum fjárfestum í Bandaríkjunum á sviði líftækni. Íslensk erfðagreining mun áfram starfa undir nafninu deCODE genetics og selja vörur sínar og þjónustu, m.a. deCODEme erfðagreiningarpróf fyrir einstaklinga, deCODE Diagnostics greiningarpróf og vísindaþjónustu deCODE. Íslensk erfðagreining hefur algjöra sérstöðu í rannsóknum í mannerfðafræði í heiminum. Rannsóknir fyrirtækisins byggja á erfða- og læknisfræðilegum upplýsingum um 500.000 aðila frá öllum heimshornum sem tekið hafa þátt í rannsóknum á vegum fyrirtækisins. Þar af eru um 140.000 Íslendingar sem lagt hafa fyrirtækinu lið undanfarin ár. „Íslensk erfðagreining er í fararbroddi í heiminum hvað varðar rannsóknir á breytileikum í erfðamengi mannsins sem hafa áhrif á algenga sjúkdóma. Rannsóknir okkar og sérþekking hafa gert okkur kleift að þróa greiningatæki sem eru einstök. Þessi tæki eru nýtt í þágu sjúklinga, lækna og vísindamanna. Við trúum að geta okkar til að vinna með æ meira magn upplýsinga muni tryggja áframhaldandi forystu okkar við rannsóknir í erfðafræði og að með traustri fjármögnun og aðkomu Duke Collier að fyrirtækinu verðum við í fararbroddi við að breyta vísindum í framúrskarandi vörur og þjónustu.", segir Kári Stefánsson í tilkynningunni. „Ég er afar ánægður með að hafa slegist í hóp með Kára og því framúrskarandi vísinditeymi sem starfar hjá Íslenskri erfðagreiningu," segir Duke Collier. „Íslensk erfðagreining sameinar vísindi á heimsmælikvarða, óviðjafnanlegan aðgang að erfðaupplýsingum og öflug tæki til að stýra og greina þessar upplýsingar. Með þessu er Íslensk erfðagreining ómetanlegur viðskiptaaðili rannsakenda, rannsóknastofa og fyrirtækja sem starfa í fremstu röð greinarinnar."
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira