TM snéri miklu tapi í hagnað á síðasta ári 5. mars 2010 10:08
Hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) af reglulegri starfsemi á árinu 2009 var 237 milljónir kr. samanborið við 5.529 milljóna kr. tap 2008.Í tilkynningu um uppgjörið segir að hagnaður af vátryggingastarfsemi var 342 milljónir kr. fyrir skatta samanborið við 166 milljóna kr. hagnað 2008.Heildareignir TM voru 28,5 milljarðar kr. Eigið fé nam 8 milljörðum kr. og eiginfjárhlutfall var 28% þann 31. desember 2009.„Í ljósi efnahags- og samkeppnisaðstæðna var vöxtur og afkoma TM á árinu 2009 viðunandi. Iðgjaldatekjur aukast á sama tíma og tjónakostnaður lækkar. Hagræðingaraðgerðir á árinu 2009 skiluðu góðum árangri og lækkar rekstrarkostnaður félagsins umtalsvert," segir Sigurður Viðarsson, forstjóri TM í tilkynningunni.„ Fjárhagsstaða TM er sem fyrr traust en mikill viðsnúningur varð í fjárfestingastarfsemi félagsins. Styrkur TM felst í góðu sambandi við viðskiptavini og reksturinn framundan býður uppá fjölmörg tækifæri".Ennfremur segir Sigurður að hagnaður af vátryggingastarfsemi var 342 milljónir kr. fyrir skatta á árinu 2009. Afkoma eigna-, slysa- og frjálsra ökutækjatrygginga batnar verulega milli ára og er ánægjulegt að sjá markvissa vinnu á þessum sviðum skila árangri. Afkoma lögboðinna ökutækjatrygginga er óbreytt milli ára þrátt fyrir verulega fækkun árekstra.Athygliverð þróun hefur átt sér stað í greininni þar sem líkamstjónum fjölgar á sama tíma og munatjónum fækkar verulega. Afkoma skipa- og ábyrgðartrygginga veldur vonbrigðum en mikil fjölgun varð á ábyrgðartjónum í kjölfar efnahagshrunsins. Þrátt fyrir nýjar áskoranir lækkar tjónshlutfall samstæðunnar úr 104% í 94%.
Mest lesið Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Sjá meira