Uppruni lagstúfsins fundinn Karen Kjartansdóttir skrifar 17. febrúar 2010 13:06 Margir lögðu leið sína á Múlakaffi í gær til að bragða á baunasúpunni.
Fréttastofa leitaði í gær að uppruna lagstúfsins "saltkjöt og baunir túkall." Þjóðháttafræðingar og starfsmenn þjóðminjasafnsins hvorki skýringar á aldri þessa orðasambands né á því hvernig túkallinn komst inn í borðhaldið. Ómar Ragnarsson elsta hljóðritaða dæmið vera frá miðri öld. Karen Kjartansdóttir reyndi að leysa gátuna. Fjöldi góðra ábendinga bárust fréttastofu í gær eftir að óskað var eftir skýringum á uppruna lagstúfsins góða sem menn söngla oft á sprengidegi. Góður áhorfandi benti á að áður fyrr var oft soðbrauð haft með saltkjöti og baunum. Brauð þetta var soðið í kjötinu í hátt í klukkutíma og var það í laginu eins og kleinuhringur, rétt eins og danski túkallinn gamli sem lagið vísar í. Lagið vísi því í máltíð samansetta af salkjöti, baunasúpu og soðbrauði. Annar áhorfandi hringdi og benti á að Baldur Georgs sjónhverfingamaður og búktalari sem þekktur var fyrir að skemmta með brúðunni Konna á árunum 1946 til 1964, hafi líklega fyrstur manna endað skemmtiatriði með þessum orðum. Við bárum þessar skýringar undir Ómar Ragnarsson sem kominn er af bökurum auk þess sem hann hefur endað mörg atriði sín með þessum orðum í rúmlega hálfa öld. Hann taldi sennilegt að elsta hljóðritaða dæmi af þessum söng sé af plötu með Baldri frá árinu 1954. Þá benti hjálpsamur starfsmaður Þjóðminjsafnsins á að fyrir tveimur árum hafi verið spurt um orðatiltækið í þættinum Íslenskt mál hjá Ríkisútvarpinu. Þá hafði samband kona sem benti á að lagið væri þekkt frá rakarakvartettum í Bandaríkjunum sem á árum áður sungu Shave and a haircut 10 cents. Ekki fékkst þó skýring á því hvernig þetta var svo yfirfært á túkallinn og saltkjöt og baunir. Ómar segir auk þess að þótt ekki sé vitað hve lengi Íslendingar hafi sönglað þetta hafi verið alþekkt að ljúka atriðum á þennan hátt þegar hann var átján ára gamall að stíga sín fyrstu skref á sviði um miðbik síðustu aldar. Barnabarn Baldurs, Ágúst Freyr Ingason, staðfesti í samtali við fréttastofu að þetta mætti allt rekja til Baldurs. Afi hans hafi sagt honum frá því að þetta væri frá sér komið.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Frakkland má ekki vera fyrirmynd í þessum efnum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira