Rætt um að evruríkin stofni sérstakan gjaldeyrissjóð Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. mars 2010 22:18 Mynd/ AFP.
Evruríkin ættu að velta því vandlega fyrir sér hvort þörf sé á því evrópskri stofnun, sambærilegri við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, til þess að forðast nýtt áfall líkt og hrun Grikklands. Þetta segir Wolfgang Schaeuble, fjármálaráðherra Þýskalands, í samtali við þýska blaðið Welt. Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir að það sé fullkomlega eðlilegt að Evrópuríkin reyni að byggja upp allar þær stofnanir sem þeir telji sig þurfa. Fjárhagsvandræðin sem Grikkir hafa staðið frammi fyrir á þessu ári eru mesta próf sem evruríkin hafa staðið frammi fyrir frá því að Myntbandalag Evrópu var stofnað. Evran hefur lækkað um næstum 5 prósent gagnvart bandaríkjadal á þessu ári vegna ótta við að mögulegt greiðsluþrot Grikkja gæti gert út um myntsamstarfið. Forsætisráðherra Grikkja, George Papandreou, hefur kynnt umfangsmiklar niðurskurðaraðgerðir til þess að fást við fjárhagsvandann. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur hingað til verið ófús til að tjá sig um hverskonar aðstoð evruríkin myndu bjóða Grikkjum ef þörf væri á. Enda er talið að slíkar björgunaraðgerðir myndu mælast mjög illa fyrir á meðal almennings í Þýskalandi. Daily Telegraph greindi frá.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira