Yfir 50% útlána Byggðastofnunnar eru gengistryggð lán 15. júní 2010 10:27
Nú eru 53% lántakenda Byggðastofnunar með erlend lán eða 268 af 509 lántakendum. Gengistryggð útlán Byggðastofnunar stóðu í 9,9 milljörðum kr. 30. júní 2008 en voru komin í 16,1 milljarð kr. í árslok 2008. Að mati Byggðastofnunar var staðan svipuð í árslok 2009. Þetta kemur fram í svari Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar Framsóknarflokki um gengistryggð lán hjá Byggðastofnun. Gunnar Bragi spurði ennfremur um hvort til stendur að gera Byggðastofnun kleift að bregðast við hækkun gengistryggðra lána með svipuðum hætti og aðrar fjármálastofnanir hafa boðað? Í svari ráðherra segir að eftir útlánatöp og afskriftir útlána í kjölfar efnahagshrunsins var eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar komið niður fyrir lögbundið lágmark. Eiginfjárhlutfall skal að lágmarki vera jákvætt um 8% en samkvæmt árshlutauppgjöri í lok júní 2009 var það neikvætt um 4,74%. Að beiðni Byggðastofnunar vann Ríkisendurskoðun úttekt og greiningu á efnahagsreikningi og eignasafni stofnunarinnar. Ríkisendurskoðun taldi að lokinni þeirri greiningu ekki ástæðu til að gera athugasemdir við það mat sem fram kom í árshlutauppgjörinu. Í framhaldinu ákvað Alþingi að auka eigið fé Byggðastofnunar um 2,6 milljarða kr. með fjáraukalögum 2009. Jafnframt samþykkti Alþingi allt að 1,0 milljarðs kr. framlag til að bæta eigið fé stofnunarinnar á fjárlögum 2010. Hluti þessarar heimildar verður nýttur með þeim hætti að ríkissjóður kaupir af Byggðastofnun stofnfé sem stofnunin kann að eignast í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar sparisjóða, en upphæðin verður að öðru leyti nýtt sem eiginfjárframlag í formi skuldabréfa. Miðað er við að þessi aðgerð skili eiginfjárhlutfalli á bilinu 9-10% í árslok 2010. Ráðstöfun þessi mun gera Byggðastofnun kleift að starfa með eðlilegum hætti, en ekki hefur verið gert ráð fyrir niðurfærslu á höfuðstóli gengistryggra lána samhliða þessu.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira