Lilja hafnar ásökunum Jóhannesar 7. mars 2010 12:15 Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis. Mynd/GVA
Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, segist ekki skilja hvað Jóhannesi Jónssyni gangi til með bréfi til sín sem hann sendi jafnframt þrettán öðrum þingmönnum, en þar sakar hann Lilju um að grafa undan mannorði sínu. Það kannast hún ekki við. Eins og fréttastofa greindi frá í gærkvöldi segist Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bónus í bréfi sem stílað er á Lilju Mósesdóttir upplifa í annað sinn pólitískar ofsóknir á hendur sér. Hann sendi bréfið á alla nefndarmenn í viðskiptanefnd og fleiri þingmenn. Tilefni bréfsins eru orð sem Lilja lét hafa eftir sér og sneru að Högum og aðkomu fyrri eigenda félagsins að því. Lilja segist ekki skilja bréf Jóhannesar, enda segist hún ekki hafa nafngreint Jóhannes sérstaklega í umfjöllun sinni um Haga. Hún hafnar því að hafa vegið að mannorði Jóhannesar. Lilja segist hafa haldið því fram að skipta eigi Högum upp, en hún telur að fleiri fjárfestar hafi þá bolmagn til að bjóða í fyrirtækin. Hún segist telja að Jóhannes hljóti að vera sammála sér í ljósi þess að Arion banki hafi tekið yfir Haga því þá séu væntanlega meiri líkur á að Jóhannes geti boðið í Bónus og eignast fyrirtækið á ný. Hún segist hafa fengið skilaboð um að hringja í Jóhannes, en í þeim hafi verið rangt símanúmer. Hún segist áskilja sér frest til að svara bréfi Jóhannesar formlega. Auk þess segir hún að sér finnist afar skrýtið að bréf sem stílað hafi verið á hana hafi verið sent á aðra þingmenn.
Tengdar fréttir Sakar þingmann um pólitískar ofsóknir Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bónus sendi viðskiptanefnd Alþingis bréf í vikunni þar sem hann sakar Lilju Mósesdóttur alþingismann um að grafa undan mannorði sínu. 6. mars 2010 18:45 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira
Sakar þingmann um pólitískar ofsóknir Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bónus sendi viðskiptanefnd Alþingis bréf í vikunni þar sem hann sakar Lilju Mósesdóttur alþingismann um að grafa undan mannorði sínu. 6. mars 2010 18:45