Innflutt hráefni til álvera var helmingur af útflutningstekjum 15. febrúar 2010 12:41
Álútflutningur skilaði í fyrra 167 milljörðum kr. í útflutningstekjur, sem jafngildir þriðjungi af heildartekjum af vöruútflutningi. Nettó gjaldeyrisinnflæði vegna álframleiðslu var þó til muna minna. Orsakir þess eru til að mynda hráefnisinnflutningur, en í fyrra var flutt inn hráefni til álframleiðslu fyrir 86 milljarða kr. sem samsvarar ríflega helmingi af útflutningstekjum af áli.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um nýlegt yfirlit iðnaðarráðuneytisins um fjárfestingar í orkufrekum iðnaði á næstu árum. Í yfirlitinu kemur m.a. fram að ráðuneytið telur þessar fjárfestingar gætu numið 265 milljörðum kr. næstu fjögur árin.Í Morgunkorninu segir að hlutfall innflutningsgjalda af útflutningstekjum var raunar óvenju hátt í fyrra, en það hefur að jafnaði verið í kring um 40% undanfarin ár. Þá rennur hluti framlegðar álfyrirtækjanna til afborgana af erlendum lánum, og sama má segja um stóran hluta tekna orkufyrirtækja af raforkusölu til þeirra.Í grófum dráttum má raunar segja að nettó gjaldeyrisinnstreymi af álframleiðslunni á hverjum tíma eigi að svara til launakostnaðar álfyrirtækja auk þjónustukaupa þeirra innanlands, að viðbættum innlendum kostnaði og hagnaði orkufyrirtækja vegna orkusölu til álframleiðslu.Þar er þó um verulegar upphæðir að ræða, enda starfa 1.500 manns hjá álfyrirtækjunum þremur hér á landi og ef marka má mat iðnaðarráðuneytis eru afleidd störf vegna álframleiðslu allt að tvöfalt fleiri.Gjaldeyrisinnstreymi vegna nýfjárfestinga í orkufrekum iðnaði gæti haft talsverð áhrif á innlendum gjaldeyrismarkaði, sér í lagi á meðan hann er jafn smár í sniðum og nú er vegna gjaldeyrishaftanna.Líklegt er að hlutfall innlends kostnaðar í ofangreindum framkvæmdum verði töluvert hærra en raunin var þegar álverin í Reyðarfirði og Hvalfirði voru byggð upp. Þannig hefur Norðurál til að mynda lýst því yfir að fremur verði notast við innlent vinnuafl en erlendar starfsmannaleigur við byggingu Helguvíkurálversins, og gera má ráð fyrir að svipað gildi um Straumsvíkurstækkun sem og byggingu orkuveranna. Þar kemur bæði til gerbreytt atvinnuástand innanlands og eins það að eftir hrun krónu er íslenskt vinnuafl nú tiltölulega ódýrt í samanburði við erlent.Áætlun iðnaðarráðuneytis gerir enda ráð fyrir 7.800 ársverkum vegna uppbyggingar orkufreks iðnaðar á næstu fjórum árum, að frátöldum afleiddum störfum sem gætu numið öðru eins. Það má því ljóst vera að nokkuð er í húfi fyrir íslenskan vinnumarkað og efnahagslíf að ekki verði óhóflegar tafir á þessari uppbyggingu næstu misseri, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira