Viðskipti innlent

Viðskiptavinir SP-Fjármögnunar fá upplýsingar á næstu dögum

Eftirfarandi yfirlýsing hefur borist frá SP-Fjármögnun vegna gengisdómsins sem féll í Hæstarétti í dag:

SP-Fjármögnun mun endurútreikna erlenda bílasamninga eins fljótt og mögulegt er samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar í dag, fimmtudaginn 16. september. Samkvæmt dómnum ber fjármálafyrirtækjum að endurútreikna lánin með almennum vöxtum Seðlabanka Íslands eins og þeir eru á hverjum tíma.

SP-Fjármögnun hefur síðan í júní unnið að endurútreikningum lánanna miðað við mismunandi hugsanlegar niðurstöður dómsins og er sú vinna langt komin. Fyrirtækið mun senda út upplýsingar til viðskiptavina sinna á næstu dögum þar sem fram kemur ný staða samninga sem tekur mið af almennum vöxtum Seðlabanka Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×