Viðsnúningur í afstöðu viðskiptalífsins til ESB 15. febrúar 2010 05:00 Meirihluti forsvarsmanna fyrirtækja telur að taka þurfi upp nýjan gjaldmiðil en einnig að viðskiptalífinu sé betur borgið utan ESB.
Tæplega sextíu prósent forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja telja hagsmunum íslensks viðskiptalífs betur borgið utan Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Viðskiptaráð. En fyrir ári síðan var meirihluti forsvarsmannanna hlynntur því að sótt yrði um aðild að ESB og taldi umsókn geta bætt stöðu efnahagsmála. Nú segir 31 prósent aðspurða að viðskiptalífinu væri betur borgið innan ESB. Einnig var spurt um afstöðu til gjaldmiðilsins. Meirihluti forsvarsmanna fyrirtækjanna, 51 prósent, telur viðskiptalífið betur sett með annan gjaldmiðil, en 37 prósent vilja halda í krónuna. Í tilkynningu frá Viðskiptaráði segir að niðurstöður þessara spurninga leiði í ljós að níutíu prósent þeirra, sem telja hagsmunum íslensks viðskiptalífs mikið betur borgið innan ESB, telja það einnig betur sett með annan gjaldmiðil. En 69 prósent þeirra sem telja hagsmununum mikið betur borgið utan ESB telja betra að vera með krónuna. Viðskiptaráð telur niðurstöðurnar endurspegla óvissu sem ríki um stefnu stjórnvalda í gjaldeyris-, peninga-, og Evrópumálum. Brýnt sé að óvissunni verði eytt hið fyrsta. Könnunin verður kynnt á komandi Viðskiptaþingi og tekur einnig til úrræða fjármálastofnana vegna rekstrarvanda fyrirækja og breytingar á skattakerfi. - kóþ
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira