Mikil eftirpurn eftir löngum bréfum jákvætt fyrir ríkissjóð 8. febrúar 2010 11:47
Mikil eftirspurn eftir löngum ríkisbréfum í útboði s.l. föstudag hlýtur að teljast afar jákvæð fyrir ríkissjóð m.v. þá áherslu að lengja í endurgreiðsluferli skulda hans. Jafnframt telur greining Íslandsbanka að niðurstaðan sé afar góð fyrir skuldabréfamarkaðinn.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í tilkynningu Lánamála ríkisins kemur fram að alls bárust 61 gild tilboð í RIKB25 að fjárhæð rúmlega 17 milljarða kr. að nafnverði. Var tilboðum tekið fyrir 6,7 milljarða kr. á ávöxtunarkröfunni 7,83%.Innlendir fagfjárfestar á borð við lífeyrissjóði og verðbréfa- og fjárfestingasjóðir hafa verið stórtækir kaupendur RIKB25 í undanförnum útboðum og má ætla að slíkir fjárfestar hafi einnig verið atkvæðamiklir í útboðinu nú.Eftir útboðið hefur ríkisbréfaflokkurinn RIKB25 stækkað úr tæpum 64 milljörðum kr. í um 70 milljarða kr. Margir töldu það illmögulegt að byggja upp óverðtryggðan langtímavaxtaferil á íslenskum skuldabréfamarkaði þegar farið var í það verkefni fyrir nokkrum misserum en m.v. áhuga fjárfesta á löngum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum er ljóst að svo er ekki.„Í raun er uppbygging slíks ferils forsenda þess að hægt sé að bjóða íslenskum fyrirtækjum og einstaklingum upp á langtíma óverðtryggð lán á föstum vöxtum, til að mynda íbúðalán," segir í Morgunkorninu.Í flokk RIKB11 bárust 21 tilboð að fjárhæð 7,1 milljarða kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3,75 milljarða kr. á 7,34% ávöxtunarkröfu. Flokkurinn er að stærstum hluta í eigu útlendinga. Þannig áttu erlendir aðilar nærri tvo þriðju hluta flokksins í nóvemberlok.„Teljum við líklegt að innlendir aðilar hafi verið áhugasamari um RIKB11 nú og að erlendir aðilar haldi sig enn fast við þá stefnu að festa fjármuni sína sem allra styst hérlendis. Má því ætla að hlutdeild þeirra í flokknum hafi minnkað eftir útboðið á föstudaginn. Með hækkandi sól gæti hins vegar áhugi útlendinga á flokknum aukist þegar binditími hans fer undir þau eins árs mörk sem margir þeirra horfa til," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira