Viðskipti innlent

Þriðja endurskoðun AGS verður 29. september

Samkomulag hefur náðst um að þriðja endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands verði tekin fyrir í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) 29. september næstkomandi.

Þetta kemur fram á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að íslensk stjórnvöld hafa sent sjóðnum endurnýjaða viljayfirlýsingu (e. Letter of Intent) í samræmi við reglur sjóðsins.

„Þriðja endurskoðun efnahagsáætlunarinnar er mikilvægur áfangi í endurreisn hagkerfisins,“ segir ennfremur á stjórnarráðsvefnum.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×