Endurskoðendur hafna alfarið ásökunum Landsbankans 1. desember 2010 21:57
PricewaterhouseCoopers (PwC) hafnar alfarið ásökunum slitastjórnar og skilanefndar Landsbankans um skaðabótaskylda háttsemi fyrirtækisins vegna endurskoðunar á ársreikningi Landsbankans 2007 og könnunar á árshlutareikningum bankans á árinu 2008. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá PwC. Fram kom á fundi skilanefndar og slitastjórnar Landsbankans í dag að bankinn hafi verið kominn langt undir lögmætt eiginfjárhlutfall töluvert löngu áður en hann féll í október 2008. Þá sagði Herdís Hallmarsdóttir, meðlimur í slitastjórn Landsbankans, að slitastjórnin teldi að ekki hafi verið staðið rétt að flokkun venslaðra aðila og þar með áhættuskuldbindingum vegna útlána til þeirra. Aðspurð sagði hún að slitastjórnin teldi að bankinn hafi brotið reglur um stórar áhættuskuldbindingar vegna lána til félaga í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar á árinu 2007 og 2008. Í yfirlýsingu PwC kemur eftirfarandi fram: „PwC hafnar alfarið þeim ályktunum sem fram koma í bréfinu og þeim staðhæfingum sem hafðar hafa verið eftir fulltrúum slitastjórnar í fjölmiðlum í dag þess efnis að PwC hafi brugðist starfsskyldum sínum í vinnu sinni fyrir Landsbankann. Hlutverk PwC sem endurskoðenda bankans var að láta í té álit á ársreikningum og ályktanir um árshlutauppgjör. Í því fólst umsögn um það hvort reikningsskilin, sem unnin voru og lögð fram á ábyrgð stjórnenda bankans, hafi verið í samræmi við lög og alþjóðlegar reikningsskilareglur. Niðurstöður PwC tóku mið af þeim upplýsingum sem endurskoðendur PwC höfðu aðgang að á þeim tíma þegar vinna þeirra fór fram. Endurskoðendur PwC komu ekki að gerð uppgjöra eða ákvarðanatöku í Landsbankanum."
Tengdar fréttir Telja að bankinn hafi blekkt með ársreikningum Slitastjórn Landsbankans telur að bankinn hafi veitt rangar upplýsingar í ársreikningum árið 2007 og ætlar að krefjast bóta frá endurskoðendum af þeim sökum. 1. desember 2010 15:18 Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Fleiri fréttir Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Sjá meira
Telja að bankinn hafi blekkt með ársreikningum Slitastjórn Landsbankans telur að bankinn hafi veitt rangar upplýsingar í ársreikningum árið 2007 og ætlar að krefjast bóta frá endurskoðendum af þeim sökum. 1. desember 2010 15:18