Landsbankinn fer framhjá Kjararáði 8. júní 2010 18:32
Landsbankinn hefur stofnað sérstakt félag utan um dótturfélög sín og kemst þannig hjá því að hlýta úrskurðum Kjararáðs og getur borgað framkvæmdastjórum hærri laun en ella. Fjármálaráðuneytið ætlar að taka málið upp við Bankasýslu ríkisins. Í lögum um kjararáð er kveðið á um að enginn ríkisstarfsmaður skuli hafa hærri föst laun fyrir dagvinnu en forsætisráðherra, sem nema 935 þúsund krónum á mánuði. Lögin ná yfir laun og starfskjör forstöðumanna fyrirtækja í eigu ríkisins og dótturfélaga þeirra. Í lok mars síðastliðnum sendi kjararáð framkvæmdastjórum dótturfélaga Landsbankans bréf þar sem þeim var gefinn kostur á að tjá sig um fyrirhugaða ákvörðun ráðsins, sem fól í sér launalækkun sem tæki gildi 1. maí. Síðdegis daginn eftir barst kjararáði bréf frá bankastjóra Landsbankans um að bankinn hefði ákveðið að færa eignarhald á helstu dótturfélögum sínum í sérstakt eignarhaldsfélag. Bankastjóri Landsbankans yrði stjórnarformaður þess en enginn framkvæmdastjóri yrði í félaginu. Dótturfélög Landsbankans urðu með þessu að dóttur-dótturfélögum bankans. Um er að ræða Landsvaka, SP fjármögnun, Horn fjárfestingarfélag, Vestia og Reginn. Kjararáð vakti athygli fjármálaráðherra á áformum Landsbankans og óskaði eftir úrskurði frá ráðuneytinu um heimildir til að ákvarða laun forstöðumanna umræddra dótturfélaga eftir stofnun nýja félagsins. Í úrskurði fjármálaráðuneytisins sem birtur var í dag segir að ef Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið samþykki áform Landsbankans, sé ljóst að launakjör framkvæmdastjóranna heyri ekki undir kjararáð. Að óbreyttum lögum sé því ekki mögulegt fyrir kjararáð að ákveða laun þeirra. Ráðuneytið ætli að taka málið upp við bankasýslu ríkisins.
Mest lesið „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Sjá meira