Nýtt hlutafélag stofnað um rekstur Flugstoða og Keflavíkurflugvallar 31. janúar 2010 15:59 Frá stofnfundinum.
Opinbert hlutafélag um sameinaðan rekstur opinberu hlutafélaganna Flugstoða og Keflavíkurflugvallar var stofnað síðastliðinn föstudag. Þórólfur Árnason, fyrrverandi forstjóri og borgarstjóri, var kjörinn formaður nýrrar stjórnar. Tilgangur hins nýja félags er að reka alla flugvelli landsins og sjá um uppbyggingu þeirra ásamt tilheyrandi flugstöðvum og mannvirkjum, reka og byggja upp flugleiðsögu- og flugumferðarþjónustu og annast rekstur starfsemi sem er í beinum tengslum við flugrekstur. Nafn hins nýja félags hefur ekki verið ákveðið ennþá en heiti þess í upphafi er FLUG-KEF ohf. Á stofnfundinum var stofnskrá fyrir félagið undirrituð og samþykktir félagsins samþykktar af fulltrúa fjármálaráðherra, Þórhalli Arasyni. Þá var kjörin stjórn og sitja í henni sjö aðalmenn og sjö til vara. Aðalmenn eru: Þórólfur Árnason, Arngrímur Jóhannsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Arnbjörg Sveinsdóttir, Ásta Rut Jónasdóttir, Ragnar Óskarsson og Jón Norðfjörð. Á stjórnarfundi að loknum stofnfundinum skipti stjórnin með sér verkum og var Þórólfur kjörinn formaður. Í framhaldi af stofnfundinum verða í næstu viku haldnir hluthafafundir í Flugstoðum ohf. og Keflavíkurflugvelli ohf. Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti ávarp í lok fundar og sagði að stjórn hins nýja félags hefði með höndum umfangsmikið hlutverk strax á fyrsts degi. Hann kvaðst vænta þess að hún ætti gott samstarf við fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytið svo og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið. Hann sagði það verkefni samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að bera ábyrgð á faglegri stefnumótun félagsins í samvinnu við stjórnina. Óskaði hann að lokum hinu nýja félagi velfarnaðar.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira