Frestun S&P kann að hafa lækkað skuldatryggingaálagið 4. febrúar 2010 13:59
Greining Íslandsbanka segir að svo kunni að vera að jákvæð tíðindi á borð við framlengingu frests Standard&Poor´s (S&P) á því að taka ákvörðun um lánshæfiseinkunn Íslands og aukinn stuðning við málstað landsins í Icesave á erlendri grundu hafi einhver áhrif á lækkandi skuldatryggingaálags ríkissjóðs. Eins og greint var frá hér á síðunni í gær fer nú skuldatryggingaálag á ríkissjóð aftur lækkandi eftir miklar hækkanir í kjölfar ákvörðunar forseta Íslands í upphafi síðasta mánaðar að vísa Icesave málinu til þjóðaratkvæðagreiðslu. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgnkorni sínu. Þar segir að frá áramótum hefur athygli evrópskra fjárfesta í auknum mæli beinst að þeim löndum evrusvæðis sem á brattann eiga að sækja hvað varðar opinber fjármál á komandi misserum. Þar er Grikkland efst á lista. Fjárlagahalli Grikkja nam 12,7% af vergri landsframleiðslu (VLF) í fyrra og talið er að skuldir gríska ríkisins muni nema 135% af VLF í lok næsta árs. Hafa aðgerðir stjórnvalda þar í landi til þess að snúa þessari óheillaþróun við ekki þótt nægilega trúverðugar enn sem komið er. Skuldatryggingarálag til 5 ára á Grikkland er nú 423 punktar en var 280 punktar í upphafi árs. Í kjölfarið hafa fjárfestar svo beint sjónum að fleiri evruríkjum í áþekkri stöðu. Þannig hefur 5 ára skuldatryggingarálag á Portúgal ríflega tvöfaldast frá áramótum og álagið á Spán hækkað um tæp 50% á sama tíma. Álagið á fyrrnefnda landið er nú 227 punktar, en 168 punktar á það síðarnefnda. Þróun íslenska skuldatryggingarálagsins virðist nú eiga meiri samleið með almennri þróun skuldaálags í Evrópu en álagi á suðræn vandamálaríki evrusvæðis þessa dagana. Þannig hækkaði ITRAXX Europe vísitalan, sem mælir meðalálag á skuldir stórra fyrirtækja í Evrópu, verulega í janúar en hafði snemma í morgun lækkað lítillega frá upphafi febrúarmánaðar.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira