Vilja hleypa „vondum“ krónum inn 3. febrúar 2010 04:00 Erlendir fjárfestar hafa leitað eftir því að kaupa hlut í íslenskum fyrirtækjum og eignum með íslenskum krónum sem voru keyptar á aflandsmörkuðum eftir að gjaldeyrishöft voru sett á. Fram til þessa hefur slíkt verið bannað. Markaðurinn/Valli
Unnið er að því að opna fjárfestum leið inn í landið með íslenskar krónur sem þeir hafa keypt á aflandsmörkuðum eftir að gjaldeyrishöft voru sett í nóvember 2008. Ræddar hafa verið ýmsar hefðbundnar og óhefðbundnar leiðir til að gera þetta mögulegt innan stjórnsýslunnar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Horft er til þess að aflandsféð verði nýtt til að fjármagna íslensk fyrirtæki á meðan dyrnar eru lokaðar landinu á erlendum lánamörkuðum. Ekkert mun fast í hendi og vildi því enginn tjá sig um það opinberlega. Nokkur fjöldi erlendra fjárfesta mun hafa áhuga á að fjárfesta hér með íslenskum aflandskrónum. Reglur Seðlabankans um gjaldeyrisviðskipti hindra slíka gjörninga, nema í þeim tilvikum að hægt er að sanna að krónurnar hafi verið keyptar fyrir setningu gjaldeyrislaganna í nóvember 2008. Gefi Seðlabankinn ekki græna ljósið á viðskiptin er eina færa leiðin fyrir fjárfestana til að koma krónunum í verð að skipta þeim í erlenda mynt ytra, svo sem evrur. Það þykir óhagstæður kostur enda ljóst að krónurnar seljast ekki nema með verulegum afslætti. Nokkrar leiðir hafa verið ræddar um það hvaða leiðir verði opnaðar til að hleypa aflandskrónunum inn. Ein þeirra felur í sér að heimila útlendingum að fjárfesta í óskráðum fyrirtækjum gegn skuldbindingu um að festa fé sitt til eins eða tveggja ára. Önnur er sú að stofna sjóð fyrir aflandsféð, sem muni dreifa áhættunni og fjárfesta í mörgum fyrirtækjum. Sjóðnum yrði stýrt með hefðbundnum hætti. Viðmælendur Fréttablaðsins segja aflandskrónurnar geta haft góð áhrif á íslensk fyrirtæki, sem ekki eru skráð á hlutabréfamarkað, jafnvel sem vítamínsprauta fyrir nýsköpunarfyrirtækin.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira