TIF telur kröfur banka og sparisjóða í þrotameðferð 0 krónur 3. febrúar 2010 14:23
Tryggingarsjóður innistæðueigenda og fjárfesta (TIF) telur að kröfur banka og sparisjóða sem eru í þrotameðferð á hendur sjóðnum vera 0 krónur.Þetta kemur fram í svari Gylfa Magnússonar efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur þingmanns Framsóknarflokksins á Alþingi um kröfur fjárfesta á Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta.Fyrirspurnin var í fjórum liðum þar á meðal hversu margir fjárfestar munu geta gert kröfu á Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta vegna reiðufjár eða verðbréfa sem voru í vörslu, umsjón eða umsýslu banka og sparisjóða sem eru nú í þrotameðferð? Og hver gæti verið upphæð þeirra krafna?Í svari ráðherra kemur fram að efnahags- og viðskiptaráðuneytið hafi ekki undir höndum upplýsingar um starfsemi einstakra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Þannig hefur ráðuneytið hvorki upplýsingar um fjölda viðskiptamanna, eða fjárfesta, sem eiga viðskipti við einstök fjármálafyrirtæki, né hefur það undir höndum upplýsingar um hvort verðbréf í eigu einstakra viðskiptamanna og í vörslu einstakra fjármálafyrirtækja kynnu að hafa misfarist hjá aðilum.Með tilvísun til þess sem að framan greinir, þ.e. að efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur ekki bein afskipti af rekstri vörsluaðila verðbréfa og býr þar af leiðandi ekki yfir þeim upplýsingum sem um er spurt, sendi ráðuneytið Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta, TIF, bréf og óskaði eftir að sjóðurinn tæki saman svör við fyrirspurninni á grundvelli þeirra upplýsinga sem hann kynni að búa yfir.Svar Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta er eftirfarandi: „Fjármálaeftirlitið hefur ekki gefið út álit þess efnis að greiðsluskylda hafi fallið á verðbréfadeild TIF vegna banka eða sparisjóða sem nú eru í þrotameðferð.Sjóðnum hafa ekki borist kröfur á verðbréfadeild sjóðsins vegna þeirra banka og sparisjóða sem nú eru í þrotameðferð.Með hliðsjón af ofanrituðu er það mat TIF að upphæð réttmætra krafna sé 0 kr."
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira