Misstu stjórn á sér 3. febrúar 2010 03:15 Ásta Dís Óladóttir „
Mig er farið að klæja í puttana að loka nýjum díl, við höfum ekkert gert á þessu ári," sagði einn viðmælenda Ástu Dísar Óladóttur sem rannsakaði fjárfestingar Íslendinga erlendis í doktorsritgerð sinni sem hún varði við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. Ásta Dís komst meðal annars að því í rannsókn sinni að er líða tók á fyrsta áratug 21. aldarinnar töpuðu menn sérhæfni í fjárfestingum og fóru að fjárfesta í alls konar fyrirtækjum. Græðgi hafi jafnvel virst ráða för í sumum tilfellum frekar en úthugsuð fjárfestingarstefna, eins og ofangreind tilvitnun sýnir. Ásta Dís lagði upp með að skoða alþjóðavæðingu fyrirtækja frá smáum hagkerfum með áherslu á Ísland. En hún bar einnig saman fjárfestingar Íslendinga, Íra og Ísraela. Í ljós kom að íslensku fyrirtækin fjárfestu í sömu greinum og fyrirtækin frá Írlandi og Ísrael, í fjármála- og tryggingageiranum og í fasteignum. Eins fjárfestu fyrirtækin frá löndunum þremur mest í Evrópu og Norður-Ameríku. Munurinn á fjárfestingum þessara þriggja landa fólst hins vegar aðallega í því að Íslendingar notuðu í mun meira mæli skuldsett eigið fé í fjárfestingum, það er að segja að móðurfélögin skuldsettu sig á móti eigin fjár þætti yfirtökunnar. Fá íslensk fyrirtæki stóðu í raun á bak við umsvifamiklar fjárfestingar Íslendinga sem röðuðu sér á topp World Investment Report-listans nokkur ár í röð. Ásta Dís segir margar stofnanir hafa sofið á verðinum, eftirlit með fjárfestingum hafi brugðist bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur í framhaldinu hug á að rannsaka þátt seljendanna, en hún bendir á að Danir og Bretar, sem duglegir hafi verið að gagnrýna Íslendinga, hafi einnig verið þeir er seldu Íslendingum mörg félaganna. Einnig hafi þeir í mörgum tilfellum lánað fyrir kaupunum, ásamt því að fjármagna íslensku bankana til að standa að baki fjárfestingunum. sbt
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira