Upplýst verði um eignarhald banka og annarra fyrirtækja 26. febrúar 2010 12:40
Hlutaskrár bæði hlutafélaga og einkahlutafélaga verða öllum opnar og aðgengilegar, nái frumvarp sem þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram á Alþingi. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.Í tölvupósti frá Alþingi um málið segir að frumvarpið geri ráð fyrir því að Fjármálaeftirlitinu verði skylt að birta skrá yfir hluthafa í bönkum og öðrum fyrirtækjum, sem varðveita eignarhluti sína á safnreikningum fyrirtækja í verðbréfaþjónustu.Í greinargerð með frumvarpinu segir að hulið eignarhald og flókin hagsmunatengsl fárra viðskiptablokka virðist hafa mótað starfsemi íslenskra fjármálafyrirtækja undanfarin ár með skelfilegum afleiðingum fyrir land og þjóð. Því er ljóst að nú þarf að gera auknar kröfur um gagnsæi eignarhalds, enda óljóst hvað eigi að vera því til fyrirstöðu að hluthafar gangist opinberlega við eignarhaldi sínu.Ekki virðist hafa verið ljóst í aðdraganda hrunsins, hverjir raunverulegir eigendur fjármálafyrirtækja voru. Tengslin hafi verið hulin og með hliðsjón af lögbundnu hlutverki Fjármálaeftirlitsins hljóti Fjármálaeftirlitið að verja tíma í að átta sig á innbyrðis tengslum lögaðila til að finna raunverulega eigendur fyrirtækjanna.„Leynd og ógagnsæi er hluti af hruninu og hluti af spillingu, auk þess sem það skaðar skattheimtu í garð þeirra sem mest ber að greiða til samfélagsins.", segir Guðfríður Lilja.Samkvæmt núgildandi lögum einskorðast aðgangur að hlutaskrám við hluthafana sjálfa og stjórnvöld. Stjórnir hlutafélaga eru auk þess ekki skyldugar til að uppfæra hlutaskrárnar þegar eigendaskipti verða að hlut, nema um það berist tilkynning frá seljendum eða kaupendum.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira