Hagar hafa greitt lífeyrissjóðunum 100% 26. febrúar 2010 08:03
Finnur Árnason forstjóri Haga hefur sent frá sér tilkynningu þar sem segir að Hagar hafi greitt að fullu þau skuldabréf sem lífeyrissjóðir fjárfestu í. Finnur vill árétta þetta í ljósi ályktunnar Kennarasambands Íslands um að lífeyrissjóðir eigi ekki að fjárfesta hjá þeim aðilum sem hafa valdið þeim skaða.Tilkynningin hljóðar svo: „Lífeyrissjóðirnir fjárfestu fyrir hrun bankakerfisins í skuldabréfum margra íslenskra fyrirtækja, sem skráð voru í Kauphöllinni. Hagar voru með skuldabréfaflokk, skráðan í Kauphöllinni, sem var á gjalddaga í október 2009, rúmu ári eftir hrun bankakerfisins. Hagar eru eina fyrirtæki landsins sem greiddi skráðan skuldabréfaflokk í Kauphöllinni að fullu ásamt vöxtum á gjalddaga eftir hrun.Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, fjárfesti í skuldabréfum Haga og fékk þau greidd að fullu. Hagar áttu gott samstarf við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Starfsfólk Haga er þakklátt fyrir það traust sem stjórn sjóðsins sýndi með því að fjárfesta í skuldabréfum Haga. Draga verður þá ályktun af ummælum Eiríks Jónssonar, formanns Kennarasambandsins, í fjölmiðlum síðustu daga, að hann skorti upplýsingar, eða hafi fengið rangar upplýsingar um Haga.Hagar hvetja lífeyrissjóði landsins til þess að gæta varfærni í fjárfestingum. Eðlilegt er að leitað sé öruggra leiða fyrir ævisparnað fólks, þegar kemur að fjárfestingum. Nú er unnið að undirbúningi að skráningu Haga í Kauphöllina, m.a. með því að útbúa skráningarlýsingu. Þegar hún liggur fyrir er eðlilegt að lífeyrissjóðir landsins taki ákvörðun hver fyrir sig, um hvort þeir hafi áhuga á að fjárfesta í íslensku fyrirtæki, sem veitir 2.500 manns atvinnu og hefur það orðspor að standa við skuldbindingar sínar. Ekki fyrr."
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira