Tekur áratug að endurbyggja íslenska myntsvæðið 27. september 2010 00:01 Ásdís Kristjánsdóttir og Þórhallur Ásbjörnsson hagfræðingar ásamt Ásgeiri Jónssyni, forstöðumanni greiningardeildar Arion banka. Fréttablaðið/GVA
Fimm til tíu ár tekur að endurbyggja íslenska myntsvæðið að mati sérfræðinga greiningardeildar Arion banka. Sérfræðingar bankans kynntu „Efnahagshorfur að hausti" á fundi á föstudag. Eigi að takast að endurbyggja myntsvæðið segir Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildarinnar, að raungengi þurfi að vera lágt og afgangur á viðskiptum við útlönd. Þá þurfi ríkisfjárlög að skila afgangi og einkaneysla að vera lítil. Um leið sé nauðsynlegt að fá aftur aðgang að erlendum fjármálamörkuðum og laða að erlendar fjárfestingar. „Staðreyndin er að hér á landi hefur aldrei verið ráðist í neinar stærri framkvæmdir án þess að til kæmi erlent fjármagn," segir hann. Um leið bendir Ásgeir á að innganga í Evrópusambandið og upptaka evru myndi gera ferlið allt auðveldara og kostnaðarminna. Þrátt fyrir allt þá segir Ásgeir stöðu Íslands samt að sumu leyti betri en annarra landa í Evrópu því við vitum hvar við stöndum. „Það er búið að skrifa niður eignir bankanna og endurfjármagna þá," segir hann og kveður að lán hafi verið í óláni að hve miklu leyti þeir voru fjármagnaðir í útlöndum. „Það er búið að klippa af stóran hluta af erlendum skuldum landsins." Ásgeir bendir á að hér hafi peningamagn í umferð fjórfaldast frá árinu 2003. Til þess að koma þessu fjármagni í vinnu verði að byggja upp virkan eignamarkað. Bankarnir verði því að skrá fyrirtæki í þeirra eigu í Kauphöllina. Þar sé líka réttur vettvangur fyrirtækja til að sækja sér rekstrarfé. Í hagspá bankans kemur fram að efnahagsbati verði veikur, enda fyrirséð að hagvöxtur verði undir langtímahagvexti út spátímabilið sem nær til ársins 2013. Þannig kom fram í máli Ásdísar Kristjánsdóttur, hagfræðings greiningardeildar, að tafir á orkuframkvæmdum hafi þegar sett strik í reikninginn. Spá bankans gerir ráð fyrir Búðarhálsvirkjun, en ekki öðrum orkutengdum verkefnum.- óká
Mest lesið Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Viðskipti innlent Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Viðskipti innlent Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Viðskipti innlent Hvað á að gera við fermingarpeningana? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Sjá meira