Hagar samþykkja að greiða 270 milljónir vegna samkeppnisbrota 27. september 2010 14:20
Hagar viðurkenna að hafa brotið samkeppnislög og fallast á að greiða 270 milljónir króna stjórnvaldssekt vegna brotanna. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að verslanir Bónuss, sem eru í eigu Haga, og átta kjötvinnslufyrirtæki hafi brotið gegn tíundu grein samkeppnislaga. Þetta gerðu fyrirtækin með gerð tvíhliða samninga og samstilltum aðgerðum í tengslum við smásöluverðlagningu á kjöti og unnum kjötvörum sem kjötvinnslurnar hafa verðmerkt fyrir Haga. Samkeppniseftirlitið tilkynnti umræddum fyrirtækjum niðurstöðu sína í júlí og gaf þeim kost á að tjá sig um hana. Í kjölfarið óskuðu Hagar eftir því við Samkeppnisstofnun að fá að ljúka málinu með sátt. Hagar samþykkja að grípa til ráðstafana sem ætlað er að efla samkeppni í sölu á kjötvörum neytendum til hagsbóta. Í þessu felst meðal annars að Hagar skuldbinda sig til þess hætta öllum samskiptum við kjötvinnslufyrirtæki um smásöluverð í verslunum Haga og hætta í áföngum að taka við vörum frá þeim sem merktar eru með leiðbeinandi smásöluverði. Þá er lagt bann við því að verslanir Haga gefi upp afslátt á kjötvörum nema um raunverulega lækkun frá gildandi smásöluverði sé að ræða. Rétt er að taka fram að Hagar hafa í samskiptum við Samkeppniseftirlitið lagt á það áherslu að félagið hafi ekki haft ásetning til þess að raska samkeppni og að við mat á eðli málsins verði að horfa til þess að löng hefð sé fyrir forverðmerkingum hjá öllum fyrirtækjum á matvörumarkaði. Sátt þessi auðveldar rannsókn Samkeppniseftirlitsins auk þess sem hún hefur mun fyrr en ella í för með sér breytingu á markaðnum og jákvæð áhrif fyrir samkeppni og neytendur. Með sáttinni er málinu lokið gagnvart Högum. Þáttur kjötvinnslufyrirtækjanna er enn til skoðunar en fyrirtækin eru Kjarnafæði hf., Síld og fiskur ehf., Sláturfélag Suðurlands svf., Norðlenska ehf., Kaupfélag Skagfirðinga svf., Kjötbankinn ehf., Reykjagarður hf. og Matfugl ehf.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira