Meðallaun hjá félögum FVH eru 600 þúsund á mánuði 16. september 2010 08:35
Heildarmánaðarlaun viðskiptafræðinga og hagfræðinga mælast nú 600 þúsund kr. að meðaltali sem er hækkun um tæplega 3% frá því á sama tíma í fyrra. Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH) hefur birt niðurstöður úr kjarakönnun félagsins fyrir árið 2010 en félagið hefur gert kjarakannanir reglulega frá árinu 1979. Í tilkynningu segir að hækkun launa nú er talsvert minni en í síðustu mælingu þar sem laun höfðu hækkað um 8% á milli ára. Þegar niðurstöðurnar eru greindar eftir starfsaldri svarenda kemur í ljós að laun þeirra sem eru með minnstan starfsaldur hækka hlutfallslega meira en þeirra sem hafa starfað lengur sem viðskiptafræðingar eða hagfræðingar. „Upphaflega var könnunin ávallt gerð á tveggja ára fresti en frá árinu 2007 hefur hún verið gerð árlega. Kjarakönnun FVH hefur mikla þýðingu fyrir alla viðskiptafræðinga og hagfræðinga því óhikað má segja að hún sé þeirra helsti gagnabrunnur um kjör, vinnufyrirkomulag og vinnutíma og gagnast bæði launamönnum og atvinnurekendum. Í ár byggja niðurstöðurnar á svörum 837 viðskiptafræðinga og hagfræðinga," segir í tilkynningunni. „Athygli vekur að laun kvenna hækka í ár hlutfallslega minna en laun karla. Mánaðarlaun kvenna hækka um 1% og er miðgildi þeirra nú 550 þúsund kr. en laun karla hækka um 2% og eru nú 650 þúsund kr. á mánuði. Þegar ekki er tekið tillit til annarra þátta mælast því karlar með 18% hærri laun en konur. Þegar launamunur kynjanna er svo leiðréttur með tilliti til fleiri þátta eins og menntunar, starfs, atvinnugreinar, aldurs, vinnuframlags, mannaforráða og starfsaldurs kemur í ljós að launamunur kynjanna heldur áfram að minnka. Nú mælist leiðréttur launamunur 3,2% en var 3,5% árið 2009."
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira