Fitch Ratings: Lánshæfi Íslands áfram á neikvæðum horfum 27. september 2010 10:23
Matsfyrirtækið Fitch Ratings mun ekki breyta neikvæðum horfum á lánshæfiseinkunnum Ríkissjóðs Íslands fyrr en að Íslendingar hafa sýnt fram á meiri framfarir við endurreisn bankanna, slakað hefur verið á þeim gjaldeyrishöftum sem hér hafa verið á um tveggja ára skeið og, síðast en ekki síst, niðurstaða er komin í Icesave deiluna. Greining Íslandsbanka fjallar um málið en þetta kom fram í viðtali fréttaveitunnar Reuters við Paul Rawkins, aðstoðarframkvæmdastjóra greiningarteymis Fitch í Lundúnum fyrir helgina. Sem kunnugt er setti Fitch Ratings lánshæfiseinkunn Íslands í svokallaðan ruslflokk í kjölfar þess að forseti Íslands beindi Icesavemálinu í þjóðaratkvæðagreiðslu um síðustu áramót. Að mati Rawkins dregur nýlegur dómur Hæstaréttar um viðeigandi vexti gengisbundinna lána úr óvissu í bankakerfinu en hann segir þó að enn sé mikið verk óunnið hvað endurskipulagningu á lánabókum bankanna hvað fyrirtæki varðar. Þetta leiðir til þess að efnahagsbatanum geti seinkað hér á landi. Jafnframt að þau ströngu gjaldeyrishöft sem koma í veg fyrir að fjármagn streymi frá landinu og þá um leið binda fjárfestingar erlendra aðila í íslenskum krónum virki sem dragbítur á lánstraust Íslands. Rawkins er bjartsýnn á þriðju endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á efnahagsáætlun Íslands, sem er á dagskrá síðar í þessari viku, og þær lánafyrirgreiðslur sem henni fylgja. Þó telur hann að frekari tafir á að sátt náist á milli íslenskra stjórnvalda annars vegar og svo breskra og hollenska hins vegar um Icesave muni seinka þeim fjórum endurskoðunum sem eftir eru. Af þessu viðtali er ljóst að lausn Icesave-málsins er eitt lykilatriðið til þess að hægt verði að endurreisa lánstraust ríkissjóðs, sem er í samræmi við álit matsfyrirtækjanna Moody´s og Standard & Poor´s. Hefur því lítið breyst frá því að Fitch lækkaði lánshæfismat ríkissjóðs í byrjun árs í kjölfar ákvörðunar forseta Íslands að vísa Icesave-samningnum til þjóðaratkvæðagreiðslu. Langtíma einkunnir ríkissjóðs í erlendum og innlendum gjaldmiðli eru BB+ og svo BBB-, og eins og áður segir eru horfur neikvæðar.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Óskað eftir tillögum að uppbyggingu við Reykjanesvita Viðskipti innlent WOW millilendir á leiðinni til Los Angeles Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira