Olíuæði geysar á Grænlandi 16. september 2010 10:17
Eftir að skoska olíufélagið Cairn fann gas undan vesturströnd Grænlands hafa 12 önnur olíufélög rokið til og tryggt sér leyfi til olíuleitar á hafinu úti fyrir Uummannaq á norðvesturhluta landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Auðlindaráði Grænlands en fjallað er um málið í Jyllands Posten. Þar segir að sú staðreynd að Cairn hafi skuldbundið sig til að eyða 3 milljörðum danskra kr. eða rúmlega 60 milljörðum kr. til olíuleitar á svæðinu hafi ekki dregið úr áhuga annarra olíufélaga. „Við buðum út 14 blokkir (leitarsvæði) og fengum 17 umsóknir frá 12 félögum sem við eigum nú í samningum við," segir Jörgen T. Hammeken-Holm skrifstofustjóri Auðlindaráðsins. Hammeken-Holm segir að gasfundur Cairn hafi aukið verulega áhuga annarra olíufélaga sem vilja gjarnan fá aðgang að þeim jarðfræðilegu upplýsingum sem fyrir liggja. „Það er hinsvegar undir Cairn komið hvort félagið selur sýnir upplýsingar eða ekki," segir Hammeken-Holm.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira