Viðskipti innlent

Sigurður Helgason stjórnarformaður Icelandair Group

Sigurður Helgason.
Sigurður Helgason.

Þau Auður Finnbogadóttir, Finnbogi Jónsson, Katrín Olga Jóhannesdóttir, Sigurður Helgason og Úlfar Steindórsson, voru kjörin í stjórn Icelandair Group á hluthafafundi se fram fór í dag. Þá voru þau Herdís Dröfn Fjeldsted, Magnús Magnússon og Vilborg Lofts, sjálfkjörin í varastjórn.

Sigurður Helgason var kjörinn formaður stjórnar en Finnbogi varaformaður.

Upplýsingar um stjórnarmenn:

Auður Finnbogadóttir er sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Hún hefur 15 ára

reynslu af störfum og stjórnarsetu á íslensku atvinnulífi. Hún var tímabundið framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar frá hausti 2009 til vors 2010. Auður er viðskiptafræðingur og með MBA frá Háskólanum í Reykjavík.

Finnbogi Jónsson er framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands. Hann var

framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins frá 2006. Finnbogi var áður framkvæmdastjóri SR-Mjöls frá 2003-2006. Finnbogi hefur síðustu 25 ár gengt ýmsum stjórnunarstöðum í íslenskum sjávarútvegi. Finnbogi hefur setið í fjölda stjórna íslenskra fyrirtækja, einkum tengdum sjávarútvegi. Hann er með próf í verkfræði og rekstrarhagfræði frá háskólanum í Lundi.

Katrín Olga Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs hjá Skiptum hf. Katrín Olga hefur gengt magvíslegum stjórendastöðum hjá Símanum frá árinu 2002, og var þar áður framkvæmdastjóri Navison á Íslandi. Katrín Olga á sæti í bankaráði Seðlabanka Íslands og situr í stjórn Sirius IT og Skjá Miðla. Hún er með Cand.Oecon próf frá Háskóla Íslands og MSc frá Háskólanum í Óðinsvéum.

Sigurður Helgason, er stjórnarmaður í Finnair frá árinu 2007. Hann var

forstjóri Flugleiða/FL-Group/Icelandair frá 1985-2005 og starfsmaður Flugleiða frá árinu 1974. Hann hefur setið í stjórnum Calidiris ehf , Vildarbarna og IATA. Hann lauk Cand.Oecon prófi frá Háskóla Íslands og MBA frá Chapel Hill.

Úlfar Steindórsson er framkvæmdastjóri Toyota á Íslandi. Hann var

framkvæmdastjóri Primex ehf á Siglufirði frá 2002-2004 og framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins frá 1999-2002. Úlfar hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja í íslensku atvinnulífi á síðustu árum. Úlfar er með Cand.Oecon gráðu frá Háskóla Íslands og MBA frá Virgina Commonwealth University.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×